|
Kennsluaðferðir |
|
|
Fjölbreyttar Kennsluaðferðir Í aðalnámskrá er mikil áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti og að námið skuli vera heildstætt, þannig að námsþættir styðji og styrki hvern annan. Sérstaklega er mælt með útikennslu og samvinnunámi (Aðalnámskrá grunnskóla Náttúrufræði 1999:11-12). Margskonar kennsluaðferðir má nota á umhverfisstíg og má útfæra kennsluna á marga vegu, blanda saman kennsluaðferðum eða nýta eitt úr einni aðferð og annað úr þeirri næstu. Mikilvægt er að kennarar nýti sér það mikla úrval kennsluaðferða sem úr er að velja svo námið og kennslan verði sem fjölbreyttust (Ingvar Sigurgeirsson 1999:9-10). Dæmi um kennsluaðferðir sem nýtast vel má nefna; margs konar samvinnunám, samþættingu, verkefnalausnir, efniskönnun eða „projekt” vinnu, leitaraðferðir, þrautalausnir og umhverfistúlkun. Nauðsynlegt er að kennari þekki margar kennsluaðferðir, því sitt hentar hverjum nemanda (Ingvar Sigurgeirsson 1999:67). Umræður, hugleiðing, uppgötvun og mikil samskipti er stór þáttur útikennslu en í aðalnámskrá grunnskóla er lögð áhersla á að nemendur geti tekið virkan þátt í umræðum og kunni að hlusta og skoða með athygli á gagnrýninn hátt (Aðalnámskrá grunnskóla Íslenska 1999:10-11). Samskipti skipa afar mikinn sess í útkennslu og býður upp á á að efla nemendur í lífsleikni og umhverfismennt. |
|
|
2007 © Sigrún Þórólfsdóttir |