|
Umhverfisstígur við Laxá |
|
|
Velkomin á Umhverfisstíg við Laxá í Aðaldal. Vefurinn Umhverfisstígur við Laxá er náms- og kennsluvefur þar sem áhersla er lögð á útikennslu og upplifun í náttúrunni, samþættingu námsgreina og vísindaleg vinnubrögð. Á þessum vef er að finna ýmis forvitnileg verkefni sem tengjast vatnasvæði Laxár. En Laxá rennur um S-Þingeyjarsýslu, allt frá Mývatni til ósa við Skjálfandaflóa. Vefurinn er unnin af Sigrúnu Þórólfsdóttur og er annar hluti af lokaverkefni til B.Ed. -prófs í grunnskólafræðum við Kennaraháskóla Íslands vorið 2007. Hinn hluti lokaverkefnisins er fræðileg greinargerð. Greinargerðina má finna hér en lokaverkefnið er einnig varðveitt í heild sinni á bókasafni Kennaraháskóla Íslands. Markmið þessa lokaverkefnis er að koma til móts við bæði kennara og nemendur sem vilja vera meira í tengslum við náttúruna, með því að nýta umhverfi skólans til náms og kennslu. Einnig styður vefurinn við verkefnið „Laxárskólinn", þar sem nemendur Borgarhólsskóla á Húsavík og Hafralækjarskóla í Aðaldal fá nám í anda útikennslu, en hugmyndasmiður þess verkefnis er Hermann Bárðarson. Með útikennslu gefum við börnunum tækifæri til að kynnast og tengjast nánasta umhverfi og fá um leið hreyfingu og holla útivist. Þessi vefur ætti að styðja við bakið á þeim kennurum sem vilja nýta sér það ásamt fjölbreyttum kennsluaðferðum með útikennslu í huga. Það er svo góð tilfinning að þekkja nánasta umhverfi sitt því þá þykir manni svo vænt um það. |
|
|
2007 © Sigrún Þórólfsdóttir |