6. Umhverfið

Forsíða Upp

 

 

Umhverfisskynjun

 Viðfangsefni: Umhverfið við Laxá.

 Aldur: Miðstig.

 Námsgreinar: Náttúrufræði, lífsleikni og myndmennt.

 Tími: um 15-20 mínútur á vettvangi og síðan einn tími í eftirvinnu.

 

Mynd: Augu

Markmið

Að nemendur:

- læri á og kynnist umhverfi sínu

- öðlist umhyggju fyrir umhverfinu

- læri að við skynjum og túlkum umhverfið á mismunandi hátt

- geti túlkað niðurstöður sínar á myndrænan og skriflegan hátt.

Stutt verkefnalýsing

Nemendur skynja umhverfið með hlustun og lýsa því.

Kennslugögn

Vinnublöð, skriffæri og myndavél.

Framkvæmd / vinna

Forvinna (undirbúningur / kveikja):Umræður um heyrn og sjón og hve heppin við erum að hafa þessi skynfæri. Hvernig lýsum við því sem við heyrum og sjáum.

Á vettvangi: Þegar nemendur koma á stöðina er þeim bent á hve umhverfi árinnar er fallegt og þau hvött til að taka að lágmarki tvær myndir af umhverfinu, eina nærmynd og eina fjærmynd. Benda þeim á Laxárvirkjun og Grenjaðarstað ásamt aðra bæi sem sjást. Benda þeim einnig á gróðurinn.

Síðan setjast nemendur niður og gera verkefnið (sjá nemendablað).

Eftirvinna (úrvinnsla / ígrundun): Þegar heim er komið bera hóparnir saman niðurstöður sínar og gera sameiginlegt súlurit yfir það sem heyrðist. Myndirnar eru prentaðar út og útbúið veggspjald með umhverfislýsingu við Laxá í myndum og orðum. Eins má láta þau mála saman umhverfið á stórt blað og hengja upp á vegg.

Námsmat

Fylgjast með krökkunum á vettvangi og meta úrvinnslu í vinnubók.

Verkefni

Skynjun I

Skynjun II  - eftirvinna

  

 

        2007 © Sigrún Þórólfsdóttir