Nám og kennsla á Netinu vor 2002
Kennslufræði netnáms

Heim

Svæði Þuríðar



Þuríður Jóhannsdóttir tók saman

Minnispunktar vegna lokaverkefnis sem er 1 eining eða vikuvinna

  • Nýta hugbúnað sem aðgengilegur er og geta rökstutt út frá kennslufræði hvers vegna tiltekinn hugbúnaður eða græjur er valið, t.d. Blogger, PowerPoint, exel,  Netmeeting, Mindmanager, gagnvirk próf o.s.frv. eða annað til mynd og hljóðvinnslu.
  • Nýta kennsluaðferðir sem þróast hafa í netkennslu  t.d. vefleiðangra eða vefrallýi.
  • Mikilvægt er að þið sem kennarar nýtið hvaðeina af efni sem til er á netinu - einkum skal kannað hvað til er af íslensku efni sem nýta má í kennnslu. 
  • Verkefni ykkar er að skipuleggja nám nemenda út frá því efni sem til er eða semja sjálf og setja upp heildstæðan námsvef eða einingu sem getur staðið sem sjálfstætt viðfangsefni fyrir nemendur. 


Ferli

  • Fyrst er að taka ákvörðun um viðfangsefni og setja sér markmið, skoðið námskrá ef þetta er skyldunám í grunnskóla.
  • Ákveðið hvort námsumhverfið á að veralokað að einhverju leyti t.d. umræðuvefir. Ákvörðunina verður að rökstyðja. Munið að taka mið af nemendahópnum. 
  • Kynnið ykkur hvað er til af nothæfu efni á netinu sem tengist viðfangsefninu. Ef viðfangsefnið  er t.d. náttúrufræði þá þarf að athuga íslenska vefi ýmissa stofnana og félagasamtaka á því sviði og taka afstöðu til hvort þeir henta nemendahópnum og hvort þeir eru nógu áreiðanlegir til að byggja á þeim. 
  • E.t.v. viljið þið kynna ykkur hvaða námsefni er aðgengilegt á vef Námsgagnastofnunar, Námsvefnum, Skólavefnum  eða Menntagáttinni og veljið það sem hentar viðfangsefninu. Ath að þetta er efni sem þarf að kaupa aðgang að í sumum tilvikum. Spurning hvort á að reikna með að skólinn sem maður vinnur við hafi aðgang. 
  • Þá er að skipuleggja námið og útbúa námsumhverfið á netinu
  • Opna vefi vinnið þið í þeim vefsíðugerðarforritum sem þið kjósið  og vistið á ykkar heimasvæði til að byrja með. 
  • Ef þið viljið hafa lokað umræðusvæði með opnum vef þá þurfið þið að kynna ykkur hvaða möguleikar eru fyrir hendi webboard, WebCT, Netskólann, umræðuvef á lokuðum FrontPage vef o.s.frv.
  • Takið afstöðu til hvort og hvernig þið getið nýtt hugbúnað sem þið þekkið 
  • Takið afstöðu til hvort og hvernig þið ætlið að nota myndefni og hver er tilgangurinn með því 
  • Takið afstöðu til hvort þið ætlið að nota hljóð - tónlist eða tal og hver er tilgangurinn með því 
  • Ef þið viljið fá viðbrögð við vinnu ykkar og hugmyndum áður en þið skilið endanlega sendið þá Þuríði tölvupóst á tjona@khi.is með krækju í það sem þig viljið að hún skoði. 
  • Skilið í síðasta lagi ? maí ???? 

 

Hagnýt hjálpargögn

Ókeypis landsaðgangur fyrir erlend og íslensk gagnasöfn er á  http://www.hvar.is 

Sérstakur vefur er til fyrir kennara sem eru að læra að nota UST í kennslu http://www.kennari.is 

Hér er bent á slóðir að nokkrum hjálpartækjum.

Þið gætuð haft gagn af að skoða þennan gátlista


Mat

Við mat verða eftirtaldir þættir lagðir til grundvallar:

  • Hversu viðfangsefni og markmið eru skýr og hæfa markhópnum
  • Hversu vel vefurinn virkjar nemendur í áþreifanlegum verkefnum sem eiga að leiða til náms sbr. líkan Allyson Macdonald
  • Hvernig tekst að nýta eðli miðilsins; aðgengi að efni, samskipti og birtingu efnis frá nemendum og kennrunum svo og gagnvirkni.
  • Hvernig tekst að nýta það efni sem til er á íslensku á netinu?
  • Hvernig tekst að nýta kosti og möguleika þess hugbúnaðar sem valinn er?
  • Hvernig tekst að nýta möguleika margmiðlunar á netinu hvað varðar frasetningu í stiklutexta og nýtingu mynda og hljóðs?
  • Útlit og uppsetning námsefnisins á netinu. Sjá minnispunkta um útlit.

 

Copyright © 2002 Þuríður Jóhannsdóttir
Vefsíðusnið frá songlam.com