Kennaraháskóli Íslands – Grunndeild
Nemendur sem velja kjörsvið í upplýsingatækni hafa tekið tíu einingar á því sviði en nú hefur deildarráð ákveðið að kjörsviðið megi taka til tuttugu eininga og ræðst á næstu dögum hver nákvæm útfærsla verður. Kjörsviðið í breyttri mynd nefnist kjörsvið um upplýsingatækni og miðlun. Nemendur á öðrum kjörsviðum geta valið að taka eitt eða fleiri námskeið af kjörsviðinu. Á kjörsviði með nýju sniði verður hægt að ljúka um tuttugu einingum þar sem fimmtán einingar eru í umsjón kennara á kjörsviðinu en fimm til sex einingar felast í námskeiðum sem eru þegar kennd á öðrum kjörsviðum og verða boðin í samvinnu við þau. Þar er um að ræða námskeið sem leggja mikla áherslu á upplýsingatækni, til dæmis myndgerð, myndklippingar eða tónsmíðar í tölvum; upplýsingatækni í tungumálakennslu og upplýsingatækni í stærðfræði. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Um hagnýtingu tækninnar við nám og kennslu |
Með kennslu á kjörsviðinu er stefnt að því kennaranemar verði sem best í stakk búnir til að hagnýta upplýsingatækni við framkvæmd og skipulag skólastarfs, við nám og kennslu á greinasviðum og við samþættingu námsgreina. Megináhersla er lögð þátt tækninnar og lykilhlutverk í miðlun, námi og skólastarfi. Einnig er hugað að upplýsingatækni, hönnun og nýsköpun sem beinu viðfangsefni og fagsviði í skólastarfi.
Á kjörsviðinu er fjallað um alla meginþætti tölvunotkunar í skólastarfi, keppt að tæknilegri færni og tæknilæsi og stefnt að sem næmustum skilningi á þýðingu upplýsingatækni fyrir nám, kennslu, upplýsingaleit, miðlun, samskipti og samfélag. Sérstakri athygli er beint að áhrifum tækninnar á hlutverk kennara og nemenda, möguleikum kennara til að nýta tæknina í skólastarfi og stuðla að breyttum náms- og kennsluháttum. Litið er til sem flestra greinasviða og þátta skólastarfs og leitast við að tengja umfjöllun um upplýsingatækni og skólastarf fræðilegri umræðu um nám, uppeldi og samfélagsþróun.
Til að tryggja samfellu á milli námskeiða á kjörsviðinu er meðal annars ætlast til að nemendur eigi allir stafræna verk- og ferilmöppu („portfolio“) þar sem þeir safna og birta efni á meðan þeir stunda nám á sviðinu.

Í möppunni fá bæði nemendur og kennarar gott yfirlit yfir þróun í náminu, verk nemenda og áherslur kennara; af henni má ráða margt um ferli náms og afrakstur. Einnig er lagt kapp á að tengja allt nám á sviðinu sem best við vettvangsnám og kennslu í grunnskóla.
| Námskeiðin á kjörsviðinu |
Fimm kennarar á kjörsviðinu hafa boðið fram fjögur námskeið og nú er gert ráð fyrir að þau verði fimm til sex auk námskeiða sem boðin eru fram í samvinnu við önnur kjörsvið. Margir fleiri koma að kennslu á námskeiðunum. Ýmis valnámskeið og námskeið á öðrum kjörsviðum geta vel fallið að námi á kjörsviðinu og stutt við það. Kennarar á kjörsviðinu eru líka áfram um að eiga sem besta samvinnu við kennara og nemendur á öðrum greinasviðum.
Eftirfarandi tafla sýnir vægi einstakra námskeiða sem eru í boði á kjörsviðinu. Annars vegar eru námskeið taka má til fimmtán eininga þegar um er að ræða aðalkjörsvið, hins vegar eru námskeið í samvinnu við önnur kjörsvið sem taka má til fimm til sex eininga þegar um er að ræða aðalkjörsvið.
| Númer | Heiti | Einingar | ECTS |
| 20.50.31.016/21.50.51.026 | Upplýsingatækni og skólastarf | 3 | 6 |
| 20.50.41.020/21.50.61.030 | Námsumhverfi og fjarkennsla | 3 | 6 |
| 20.50.51.026/21.50.71.036 | Þekkingarsamfélagið | 3 | 6 |
| Miðlun=læsi | 3 | 6 | |
| Stafræna gjáin | 3 | 6 | |
| 20.50.61.030/21.50.81.040 | Námsgagnagerð og miðlun | 3 | 6 |
| Ofangreind námskeið má taka sem svarar alllt að 15 einingum. | 18 | 36 | |
| Notkun upplýsingatækni í tungumálakennslu | 2,5 | 5 | |
| Stafræn myndvinnsla og kennslugagnagerð | 3 | 6 | |
| Tölvugrafík og stafræn myndvinnsla | 2 | 4 | |
| Ljósmyndun og myndbönd | 3 | 6 | |
| Stærðfræðinám í lífi og starfi | 4 | 8 | |
| Tónlist og tölvur | 3 | 6 | |
| Nemendur velja ofangreind námskeið sem svarar 5 til 6 einingum. | |||
Upplýsingar um einstök námskeið verður hægt að lesa
hér á slóðinni
http://ust.khi.is/kjorsvid innan skamms.
| Nánari upplýsingar |
Torfi Hjartarson lektor og oddviti kjörsviðs - torfi@khi.is - tók saman þessa síðu og veitir fúslega nánari upplýsingar. Eftirtaldir kennarar annast skipulag kjörsviðsins:
Jón Jónasson lektor - jonj@khi.is
Karl Jeppesen lektor - kjepp@khi.is
Salvör Gissurardóttir lektor - salvor@khi.is
Stefán Jökulsson - stefanjok@khi.is
Torfi Hjartarson lektor - torfi@khi.is
Um skipulagið er meðal annars tekið mið af kennslu upplýsingatækni í kjarna kennaranámsins. Einnig er horft til námsbrautar um tölvu- og upplýsingatækni í framhaldsdeild. Umsjón með henni hefur Sólveig Jakobsdóttir - soljak@khi.is.