Upplýsingatækni og miðlun
Framhaldsnám í KHÍ 2007-8
- á menntavísindasviði HÍ 2008-9
 

Velkomin á vefinn okkar

Framhaldsnámið í upplýsingatækni og miðlun er í boði sem sérsvið í menntunarfræði til 60 eininga M.Ed. gráðu (120 ECTS).  Í boði á sviðinu skólaárið 2007-2008 verða sex fimm eininga áfangar eða samtals 30 einingar. Sjá nánar í náms- og kennsluskrá.

Umsókn um námið fyrir skólaárið 2008-2009, sjá vef KHÍ (Umsækjendur)

Meginmarkmið og skipulag

Meginmarkmiðið með náminu er að mennta sérfræðinga sem geta stuðlað að bættu skóla- og fræðslustarfi með aðstoð upplýsingatækni, nýrra miðla og samskiptaleiða. Nemendur öðlast þekkingu og skilning á áhrifum upplýsingabyltingarinnar á nám og skólastarf, samfélag, menningu og lífstíl. Jafnframt efla nemendur færni sína í notkun Netsins og annarra stafrænna miðla við kennslu og námsefnisgerð. Áhersla er lögð á samskipti, samvinnu og gagnrýna umræðu og að nemendahópurinn myndi öflugt námssamfélag. Hvatt er til að nemendur sýni frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð í verkefnamiðuðu námi, geri vinnu sína aðgengilega og birti hana á ýmsum vettvangi. Námsmat er með fjölbreyttum hætti og nemendur þróa stafræna verkmöppu (e-portfolio) á vef. 

Nám á brautinni er fjarnám (netnám með staðbundnum lotum. Sjá einnig sérstaka kynningu á braut. Í flestum námskeiðum á námsleiðinni frá haustinu 2005 hefur opna námstjórnunarkerfið Moodle verið nýtt - sjá http://moodle.khi.is  en þar er einnig að finna ýmsar fréttir og tilkynningar.

Breytingar og þróun á náminu

Sú breyting varð fyrir námsárið 2006-2007 að brautin sem nefnd var tölvu- og upplýsingatækni, og fór af stað haustið 1998, varð að sérsviði/námsleið við námsbraut í uppeldis- og menntunarfræði (til 60 eininga M.Ed. eða 30 eininga Dipl.Ed. gráðu) en hélt sér einnig sem sjálfstæð braut fyrir þá sem lengra voru komnir (15-30 eininga Dipl.Ed. nám). Í upphafi vorannar 2007 voru nemendur sem ennþá voru skráðir á "gömlu" námsbrautina fluttir yfir á nýju M.Ed. námsbrautina.  Skólaárið 2007-2008 var gamla námsbrautin svo alveg lögð niður og allt námsframboð á sérsviðinu á þeirri nýju.  Sú breyting var einnig gerð að nafni sérsviðs var breytt í Upplýsingatækni og miðlun sem einnig er notað fyrir kjörsviðið í grunndeild.  Er nú gert ráð fyrir mun meiri samfellu við grunnnámið en áður var enda geta nemendur með B.Ed. gráðu nú  haldið beint áfram, ef þeir kjósa svo, í framhaldsnámið.

Skólaárið 2008-2009 verður KHÍ sameinaður Háskóla Íslands. Þetta námsframboð verður þá í boði sem sérsvið í M.Ed. námi í menntunarfræðum á Menntavísindasviði HÍ. Sjá náms- og kennsluskrá.


Lykilupplýsingar

Umsjón með sérhæfingu:
Sólveig Jakobsdóttir
soljak@khi.is
563-3934
663-7561

Umsjónarmenn námskeiða 2007-8:

Salvör Gissurardóttir
Sólveig Jakobsdóttir
Stefán Jökulsson
Torfi Hjartarson

Skyldunámskeið
Upplýsingatækni í menntun og... (haust)
Nám og kennsla á Netinu (vor)

Valnámskeið
Fjarnám og -kennsla
Margmiðlun til náms og kennslu (ath. skyldunámskeið á sérsviði skólaárið 2008-9)
*Miðlun, menntun og samfélag
*Stafræn gjá eða upplýsingasamfélag...


*Ekki kennt 2007-8

Upplýsingatækni og miðlun, Kennaraháskóla Íslands
Umsjón vefs: Sólveig Jakokobsdóttir, soljak@khi.is
Myndefni: Sigurjbörg Jóhannsdóttir, Torfi Hjartarson
Síðast breytt:26.02.2008