Rúmfræði og leikur
Home Up Tetris SET game Peningafótbolti Pong Hau K´i Lengsta leiðin Rúmfræðibingó Rúmfræði og tölvur Rúmfræði og leikur Rúmfræðikássa ,,Myndavélaleikurinn" Formaleikur Pússluð myndlist

 


 

Rúmfræði og leikur

Markmið:  Að nemendur  þjálfist í einföldum mælingum, úrvinnslu upplýsinga

                   og öðlist færni í að greina form í nánasta umhverfi sínu.

Aldur:         Unglingastig 8. - 10. bekkur

Gögn:        Mælingartæki, s.s mælihjól, málband, tommustokkur, skráningarblað og 

                   skriffæri, vasareiknir til að reikna út úrlausnir.

 

Lýsing:

Nemendum er skipt upp í hópa, (ca. fjórir í hóp) og fara þeir í kapphlaup (þríþraut) út á skólalóð eða íþróttavelli. Kapphlaupið fellst í því að öll lið fá úthlutað samskonar keppnissvæði sem er fyrirfram ákveðinn ferill sem getur verið hringur, ferningur, þríhyrningur o.s.frv. Kennari ræsir keppendur og hlaupa liðin boðhlaup hvert á sínum stað. Þegar allir meðlimir hóps hafa lokið boðhlaupinu eiga þeir að mæla ummál þess svæðis sem þeir hlupu og flatamál þess. Það lið sem er fyrst til að ljúka hlaupinu, mælingunum og skila skráningarblaði með upplýsingum, vinnur keppnina.

     Því næst eru nemendur látnir skoða þau form sem er að finna á skólalóðinni og í nánasta umhverfi hans, en þó án þess að fara af skólalóðinni, t.d. rólur, vegasölt, sandkassa, glugga, umferðaskilti  o.s.frv. Nemendur verða að skrá hjá sér öll þau form sem þau finna og teikna upp skýringamyndir. Eftir það er farið yfir niðurstöður hópanna og sá sem fann flestu og fjölbreyttustu formin vinnur.

 

Kennaraspurningar:

Hvað er ummál? Hvernig finnum við ummál? Hvað er flatarmál og hvernig er það fundið? Er hægt að mæla íþróttavelli á annan hátt en með því að mæla þvermál og ummál? Hvaða form sjáið þið í skólastofunni okkar? Ætli við sjáum fleiri form úti í náttúrunni en hér inni? Hvað gerum við með þessi form?

 

Útvíkkunarmöguleikar:

Hægt er að láta nemendur fara í sund og keppa í boðsundi og mæla ummál, flatarmál, hæð og lengd laugarinnarog skrá upplýsingarnar hjá sér. Skipa þarf ritara því ekki er unnt að skrifa með blautar hendur. Að því búnu klæða nemendur sig og fara í skólastofuna sína þar sem hvert lið reiknar út rúmmál laugarinnar og hvað það þarf hugsanlega mikið vatn í sundlaugina Sá hópur sem er fyrstur að skila réttum niðurstöðum vinnur.

 

 

 

 

Höfundar: Svanborg Tryggvadóttir og Svandís J. Sigurðardóttir