- Hvernig tek ég þátt í keppninni á vefnum.
- 1. Sláðu á fyrirsögnina "Umsókn á vefnum".
- 2. Fyrst nýskráir þú ýmsar upplýsingar um sjálfa(n) þig og þá ertu komin inn í kerfið
- og átt um leið eigið vefsvæði sem geymir allar þær hugmyndir sem þú skráir inn. Nú
- getur þú valið hvort þú sendir inn hugmynd eða bíður betri tíma. Mikilvægt er að muna
- lykilorð og notendanafn og því gott að skrifa þetta hjá sér. Reyndu að hafa það einfalt
- og augljóst. Ef þú sendir fleiri hugmyndir inn eða vilt endurbæta fyrri umsókn þá
- skráir þú þig inn með sama aðgangsorði og lykilorði og getur þá sótt gömlu
- hugmyndina og endurbætt eða sent inn nýja.
- 3. Næst þegar þú ferð inn slærð þú inn notendanafn og leyninúmer og velur um að
- senda inn hugmynd eða skoða hugmyndasvæði þitt. Á hugmyndasvæðinu getur þú
- endurbætt eldri hugmynd.
- 4. Þegar þú svo skráir inn hugmynd þá gefur þú henni fyrst nafn og segir hvort hún er
- uppfinning, hönnun eða hugbúnaður. Síðan segir þú frá því hvernig þú fékst
- hugmyndina og lýsir henni. Að lokum sækir þú teikninguna inn á harða diskinn.
- Teikninguna er hægt að skanna inn í tölvuna, taka mynd af teikningunni með rafrænni
- myndavél eða teikna með einhverju teikniforriti.
- 5. Síðast sendir þú svo hugmyndina inn í keppnina með því að íta á hnappinn "Senda
- inn". Þegar þú hefur sent inn færðu staðfestingu á því að skráningin hafi átt sér stað.
- 6. Athugaðu að þú einn hefur aðgang að hugmyndum þínum fyrir utan matsaðila
- keppninnar. Aðeins er hægt að bæta sömu hugmyndina einu sinni og þá að ósk
- matsaðila.
- 7. Vinsamlegast sendið hugmyndina aðeins inn aftur bara ef matsaðili biður um það.