Þar verða öll verkefni ykkar til
staðar og leiðbeiningar um lausn
þeirra.
Eftirfarandi þættir verða lagðir
til grundvallar en þeir tilheyra
kennslufræði nýsköpunarnáms.
En það sem verður öðruvísi
en áður er að notast verður við
upplýsingatæknina með áherslu
á að kennarar á námskeiðinu
geti tekist á við nýsköpun með
nemendum sínum á veraldarvefnum.
Ég mun þess vegna einungis notast
við póstlistann og vefsíðuna
ásamt þeim vefum sem komnir eru í
gagnið og þjóna
nýsköpunaráherslunni. Við munum
t.d. fá aðgang að afriti að
nýjum gagnagrunstengdum vef fyrir
nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda sem
er vistaður sem demó á
netþjóni þróunaraðilans
SvartVR. Ég
mun leiða ykkur í gegnum notkun hans og leggja
síðan áherslu á að
þið gerið tilraunir með
krakkahópi. Allt þetta er vinna en
þá vinnu ar hægt að leysa á
mismunandi hraða, en ég mun þó
miða við að námskeiðið spanni
ca. 6 vikur. Ég legg áherslu stutt verkefni
og að þau þjóni
aðalmarkmiði námskeiðsins sem er
að þjálfa ykkur í að
nýta upplýsingatæknina með
nemendum ykkar í nýsköpun.
Hér sjáið þíð
lista yfir þátttakendur og netföng
þeirra (til
baka).
Nemendur skila af sér verkefnum í
tölvupósti til kennara eða smá
frásögn af því sem þeir
gerðu. 'Tímamörkin eru 10. apríl,
nema sérstaklega sé óskað eftir
öðru.
Velkomin
á námskeiðið okkar á vefnum.
Þetta verður ofurauðvelt fyrir
þig.
Fyrsta
verkefnið er einungis að skrifa stutta
sjálfskynningu og koma fram með nokkrar
þarfir og senda á póstlistann
nsk@khi.is
en það er netfangið sem sent er á og
þá fara umræðurnar af stað.
Síðan munum við vinna með þessar
þarfir áfram og og færa okkur inn
á gagnagrunnstengdan vef sem er
æfingasvæði okkar sem við notum
í hugmyndavinnu okkar sem undirbúning fyrir
vefvinnu með börnum.
Innsending
Nafn:
Skóli:
Aldur
sem er kennt:
Kynni af
upplýsingatækninni:
Áhugamál
Og
hvað þú vilt fá út
úr svona námskeiði:
Nokkrar
þarfir: Á þarfalistann skráum
við allar þarfir og vandamál sem við
rekumst
á í umhverfi okkar.
Dæmi:
Vantar
lyftu í skólann fyrir Jóa
því hann er í hjólastól
og stærra salerni.
Skólabækur
vilja stundum losna í sundur.
Reiðhjólum
er stundum stolið.
Rúm
sem ekki þarf að búa um.
Tússpennar
vilja stundum þorna.
Þarf
að þurrka vetlinga sem eru blautir í
frímínútunum.
Baunir
vilja detta úr niðursuðudósum
þegar hellt er af.
Skíðalyftur
gera ekki ráð fyrir
snjóbrettum.
Vantar
búnað sem veiðir ánamaðka
sjálfvirkt.
Málning
fer á hausinn á málurum sem
mála upp fyrir sig.
Ég vil byrja á því að
biðja ykkur að snúa lykli
nýsköpunarinnar í skráargatinu
og leita að þörfum eða
vandamálum í umhverfi ykkar og senda
þarfir inn á póstlistann til að
byrja og sýna að þið séuð
í sambandi. Sendið einnig tillögur að
lausnum á viðkomandi vandamálum
með. Þetta er byrjun námskeiðsins en
síðan munum við vinna frekar með
þarfir ykkar, útfæra lausnirnar og
setja inn á vefinn. Eftir þetta mun
ég setja upp þarfalista á vefnum og
þá erum við komin í gang með
verkefnið.
Þarfalistinn er skráning á
óleystum þörfum og vandamálum
í umhverfi ykkar og þarfir tilheyra
öllum. Lausnirnar eru aftur oftast
sértækar og bundnar við hvern
einstakling. Til að finna þarfirnar
þá getur verið gott að líta
í kringum sig og spyrja vantar mig eða
mína eitthvað, lesa blöð og spyrja
aðra.
Þetta er upphaf
nýsköpunarnáms og lykillinn að
sköpunargáfu einstaklingsins og nú
skulum við sjá hvernig gengur og hvort allir
eru í sambandi. Mikilvægt er að geta
greint á milli þarfa og lausna, en flestir
gera ekki greinarmun.
Þetta er því fyrsta verekfnið
ykkar að greina á milli þarfa og lausna.
Þegar þessu er lokið bið ég
ykkur á ýta á reply all og senda
öllum á listanum hugrenningar ykkar.
Þið gætuð einnig farið inn
á vefinn og leitað þar að
þörfum. Spyrjið er þessi byrjun
vefst fyrir ykkur og ég mun gefa ykkur svar.
Vinnið með lausn á einni af innsendu
þörfunum. Viðfangsefnið þarf
ekki endilega að koma frá ykkur sjálfum
heldur getir það verið komið frá
öðrum þátttakenda. Komið
með eina lausn á þörfinni eða
vandamálinu og teiknið hana upp ásamt
lýsingu á virkni.
2. Teikningin. Þið getið valið
milli þess að a) teikna mynd á
teikniforrit eins og paint sem er á tölvunni
ykkar sem fylgifiskur stýrikerfisins. b) teikna
upp lausnina og skanna inn á harða diskinn
eða c) taka digital mynd af teikningunni. Munið
að vista myndina sem gif eða jpeg. Þessi
ferill á að vera einfaldur og flestir sem
kunna hann annars er ég tilbúnn að
leiðbeina þeim sem á þurfa að
halda.
3. Farið síðan inn á vefinn
http://nyskop.smartvr.is
. Þessi vefur er demó af
umsóknarvef Nýsköpunarkeppni
grunnskólanemenda. Hér skaltu skrá
þig inn og fá svæði.
Síðan skaltu senda inn hugmynd
þína með tilheyrandi lýsingu og
teikningu. En mundi að vista myndina sem
þú sendir inn sem gif eða jpeg.
Nánari uppýsingar færðu ef
þú þarf á síðunni
hvernig.
4. Síðan skaltu fara inn á
stjórnborð vefsins og prófa að
flokka hugmynd þína og skoða
stjórnborðið fram og til baka. En breyttu
ekki stjórnendaþættinum.
Slóðin er http://nyskop.smartvr.is/inngangur.asp
Notendanafn er: kennari og leynorð: kennari.
Þegar þú hefur opnað hana
skaltu prófa að færa hana um flokk og
skilgreina upp á nýtt svið hennar og
einkaleyfisflokkinn. Að þessu loknu
skaltu síðan gera mats- og
sýningarlýsingu á hugmyndinni.
5. Skoðaðu einnig einstaka þætti
sem veita þér upplýsingar um
stöðu vefsins.
P.S. Mundu að sumir hafa lent í
vandræðum með innsendingu vegna þess
að þeir hafa ekki vistað myndina sem gif
eða jpeg.
Næsta verkefni verður svo að gera
nýnæmiskönnun á hugmynd ykkar
á vefnum og sendi ég ykkur
vefsíðu á eftir. Takið
þið hugmyndina sem þið senduð inn
í gegnum vefinn og athugið hvort hún
sé skrá í evrópska
einkaleyfisbankanum.