Hugmyndaleit á alnetinu
 
Að skoða hugmyndir á IPM leitarvefnum
IPM leitarvefurinn byggir á leit í gagnagrunni sem inniheldur upplýsingar um ca. tvær og hálfa miljón skráð einkaleyfi. Hér er mikil hugmyndauppspretta fyrir þá sem vilja gera forathugun á nýnæmisgildi eigin hugmyndar og fá hugmyndir t.d. að hönnunarviðfangsefnum.
 
1. Farðu inn á veraldarvefinn og sláðu upp slóðinni:
 
Slóðin er: http://www.delphion.com/simple
 
2. Þegar þú ert kominn inn skaltu setja inn leitarorð og íta á search. Þegar þú ert búinn að þessu áttu á fá upp nokkrar hugmyndir sem þú getur síðan skoðað og prentað út til að setja í þitt eigið gagnasafn.
 
3. Byrjaðu að athuga eftirfarandi tvær eða fleiri hugmyndir. Athugaðu að leitarorðið verður að vera á ensku:
 
a) birdhouse (fuglahús)
b) Gravity Powered Shoe Air Conditioner (loftun á skóm)
c) gitarstand (gítarstandur)
d) key ring (lyklakippa)
  
Gagnabanki sænsku einkaleyfisstofunnar notaður.
Þessi leitarvél byggir á ca: 30 milljón skráðum einkaleyfum nú afla þér upplýsingar um hugmynd (þína hugmynd) á þessum vef.
 
Slóðin er: http://se.espacenet.com/
 
Þegar þú opnar þá sérðu margar línur sem hægt er að fylla út, en nóg er þó að skrifa hugmyndina á ensku í eyðuna þar sem stendur enkel text. Smelltu svo á sök. Ef til vill verður þú að sækja acrobat reader til að geta lesið gögnin. Þetta er nauðsynlegt forrit sem er ókeypis á vefnum.
 
1. Athugaðu nú hvað hvað upp kemur þegar þú slærð upp hugmyndunum sem nokkrir framhaldsskólanemendur voru að þróa á skólaárinu 1999 - 2000 í Borgarholtsskóla í Grafarvogi.  Kanski fáið þið upplýsingar sem gera hugmynd ykkar kleyft að þróast enn frekar.
 
a) motorcycle stand (mótorhjólastandur)
b) iceform (ísform)
c) scare-crow (fuglahræða)
d) ski cycle (skíðahjól)
e) worm box (ormakassi)
 
2. Prentaðu út nokkrar af þeim hugmyndum sem þú finnur.
 
Gangi þér vel.