- Westmister
city school
/ föstudagsmorgun
- Heimsókn
í enskan grunnskóla Westmister
city school (primary and secundary)
þar sem nemar fá
leiðsögn um skólann
ásamt upplýsingu um starfsemi
hans. Sérstök áhersla
verður lögð á að gera
námsgreininni Design and technology
skil en hún samsamar sig að miklu
leiti íslensku
smíðagreininni.
|
- Goldsmith
College
/
föstudagseftirmiddag
- Heimsókn
í kennaradeild Goldsmith College
í London þar sem nemendur
fá að kynnast starfsemi
skólans með sérstaka
áherslu á námsgreinina
Design and Technology. Óskað hefur
verið eftir innleggi um námsmat
í verklegum greinum í UK
frá John Saxton sem er tengiliður
deildarinnar, en hann hefur lengi unnið
við þróun námsmats
í verklegum greinum í
Bretlandi.
|
- William
Morris
/
laugardag
- Heimsókn
í William Morris safnið.
Morris er þekkt nafn úr
hönnunarsögunni og tengist
hugsuninni um gildi handverks í
tæknivæddu samfélagi.
Dagbækur hans sem hann skrifaði um
ferðir sínar á
Íslandi hafa verið
þýddar og gefnar út
á íslensku.
|
- Greewidge
Village/handverksmarkaður
/ laugardag
- Heimsókn
á handverksmarkað Greenwidge
Village, þar sem nemendur
sjá sýnishorn af
því handverk sem unnið er af
áhugafólki í London
með sölu að
markmiði.
|
- Design
Museeum
/ sunnudag
- Heimsókn
í Design Museeum þar sem
nemar skoða sýnishorn af
þróun nytjahluta á
þessarri
öld.
|
- Science
Museeum
/ sunnudag
- Heimsókn
í Science Museeum, eða
tæknisafnið í London sem
sýnir þróun
tækninnar frá tímum James
Watts. Á safninu er
sérstök deild fyrir börn, en
þar fer bæði fram
safnakennsla og börn geta gert
ýmsar tilraunir til að
þroska innsæi sitt.
|
- Bókaverslanir
/ mánudag
- Heimsókn
í bókabúð(ir) er
leggur áherslu á bækur um
hönnun, handverk og tæknimennt,
þar sem nemar geta verslað
sér uppsprettulyndir fyrir eigin verk
og kennslu.
|