|
Heim
Kennsluskrá
Fjarnám
Kennarar
Sýning
Vefgátt
Krækjur
Námsferð
Leit

-
-
|
- Smíðar
er 30 eininga valgrein sem hentar bæði
vel þeim nemendum er vilja takast á
við smíðakennslu
í
grunnskóla,
og er jafnframt góður
undirbúningur undir frekari nám
á sviði lista, handverks eða
kennslu.
- Ekki
er krafist neins undirbúnings af
nemendum. Nemendur sem útskrifast
úr smíðavali Khí
öðlast jafnframt réttindi sem
bóknámskennarar.
Í
öllum verklegum þáttum
námsins hafa nemar verulegt frelsi til
ákvarðana um einstök
viðfangsefni, form og efnisval.
Í
eftirfarandi töflu má sjá
vægi námskeiða og skiptingu
þeirra á misseri.
|
- Hönnun
og smíði í
Kennaraháskóla
Íslands
- 3.
misseri 2000 (8
einingar)
- *21.48.31-206
Hönnun og smíði
tréhluta I
- *21.48.32-206
Silfursmíði I
- *21.48.34-206
Fríhendisteikn og
hönnunarsaga
- 21.48.36-206
Teikning og
hönnunarsaga
|
-
- 2
einingar
- 2
einingar
- 2
einingar
- 2
einingar
|
- 4.
misseri 2001 (6
einingar)
- 21.48.41-010
Hönnun og smíði
tréhluta II
- *21.48.44-010
Kennslufræði nýsk
og smíða
- *21.48.42-010
Silfursmíði II og
plastvinna
|
-
- 2
einingar
- 1
eining
- 2
einingar
|
- 5
misseri 2000 (5
einingar)
- 20.48.51-996
Hönnun og smíði
tréhluta III
- 20.48.64-200
Silfursmíði III og
glervinna
- 20.48.54-966
Kennslufræði hönnunar
og smíða
|
-
- 2
einingar
- 2
einingar
- 2
einingar
|
- 6
misseri 2001 (6
einingar)
- 21.48.41-010
Hönnun og smíði
tréhluta IV
- *20.48.62-010
Rafknúin
þroskaleikföng
- *20.48.64-200
Nýbreytni í
hönnun og smíði
|
-
- 2
einingar
- 2
einingar
- 2
einingar
|
- 3.
misseri 2000 (8 einingar)
-
- *21.48.31-206
Hönnun og smíði tréhluta
I (2e)
- Tími:
3. misseri.
- Umsjón:
Benóný
Eiríksson.
- Markmið
og viðfangsefni: Nemar hljóti
þekkingu á og þjálfun
í smíði tréhluta sem
þeir útfæra sjálfir.
Áhersla er lögð á
nytjahluti og þroskaleikföng. Nemar
læri undirstöðuatriði
í hönnun og efnisfræði.
Verkfæra- og tækjafræði
fellur inn í þá
verkþætti sem fengist er við
hverju sinni. Nemar teikna að eigin vali og
hanna smíðisgripi sína
út frá mismunandi forsendum.
Farið verður í ýmsa
þekkingarþætti er varða
smíðagreinina eins og
yfirborðsmeðferð viðar,
brýningar, lím og
samlímingar, efnisfræði,
festingar og samsetningar.
- Vinnulag:
Verkleg þjálfun er
undirstaða námsins en að
öðru leyti fer kennsla fram í
fyrirlestrum, umræðu- og
leiðsögutímum. 80%
sóknarskylda.
- Námsmat:
Einkunn fyrir smíðisgripi og
verkefnalýsingar.
-
- *21.48.32-206
Silfursmíði I (2 e)
- Tími:
3. misseri.
- Umsjón:
Gísli Þorsteinsson
lektor.
- Markmið
og viðfangsefni: Nemar hanna og
smíða einfalda skartgripi og
nytjahluti. Stefnt er að því
að nemar nái tökum á
grunnverkþáttum
silfursmíðinnar s.s. sögun,
þjölun, hömrun, kúbun,
póleringu, tin- og silfurkveikingum,
sýruætingu og litun málma.
Efnisfræði málma er gerð
sérstök skil.
- Vinnulag:
Fyrirlestrar, umræður og
verkefnavinna.
- Námsmat:
Verkefni metin til einkunnar.
-
- *20.48.34.976
Fríhendisteikning (1e)
- Tími:
3. misseri.
- Umsjón:
Gísli Þorsteinsson
lektor.
- Viðfangsefni:
Kenndar verða
fríhendisteikniaðferðir eins og
réttvörpun, skávörpun,
ísómetría, sneiðingar,
samsetningarmyndir og málsetningar.
Ennfremur verður lögð
áhersla á að nemar geti
nýtt sér fríhendisteikningu
við hugmyndavinnu á skipulegan
hátt. Fjallað verður um
fagurfræðilega uppbyggingu hluta og
undirstöðuatriði í
formhönnun. Nemar reyna nokkra
þróunarferla hugmynda þar sem
áhersla er á
líkanagerð.
- Vinnulag:
Fyrirlestrar, leiðsögutímar,
heimaverkefni og verklegar
æfingar.
- Námsmat:
Verkefni metin til einkunnar.
-
- 21.48.36-206
Samlistir (3e)
- Tími:
3. misseri.
- Umsjón:
N.N.
- Viðfangsefni:
Sameiginlegt námskeið list- og
verkgreina með áherslu á
þætti úr
verkmenningarsögu íslendinga,
listkennslu, mismunandi sköpunarferla, og
verklega verkefnavinnu þar sem unnið
er í hópum innan mismunandi
sviða list- og verkgreina. Áhersla er
lögð á mat nemenda á
eigin vinnu, kynningu verkefna og
umræður.
- Vinnulag:
Fyrirlestrar, leiðsögutímar,
heimaverkefni og verklegar
æfingar.
- Námsmat:
Verkefni metin til einkunnar.
-
- 4.
misseri 2001 (6 einingar)
-
- 21.48.41-10
Hönnun og smíði tréhluta
II 2 einingar
- Tími:
4. misseri.
- Umsjón:
Benóný
Eiríksson.
- Markmið
og viðfangsefni: Unnið er m.a.
með þætti er tengjast gömlu
handverki, s.s. trafaöskjugerð,
útskurð og
trérennismíði. Áhersla
er lögð á frekari
þjálfun í beitingu
handverkfæra og vélanotkun. Nemar
útfæra smíðisgripi
sína að eigin vali og smekk.
Farið verður í ýmsa
þekkingarþætti
smíðagreinarinnar eins og
yfirborðsmeðferð viðar,
brýningar, lím og
samlímingar, efnisfræði,
festingar og samsetningar.
- Vinnulag:
Verkleg þjálfun er undirstaða
námsins en að öðru leyti fer
kennsla fram í fyrirlestrum,
umræðu- og
leiðsögutímum. 80%
sóknarskylda.
- Námsmat:
Einkunn fyrir smíðisgripi og
verkefnalýsingar.
-
- *20.48.36.996
Kennslufræði nýsköpunar og
smíða (1e)
- Tími:
4. misseri.
- Umsjón:
Gísli Þorsteinsson
lektor.
- Viðfangsefni:
Markmið smíðakennslu eru tekin
til umfjöllunar ásamt
fagnámskrá. Nemar fá
þjálfun í að semja
kennsluáætlanir og smíða
kennsluverkefnadæmi sem miðuð eru
við ákveðna
verkþætti, aldur og þroska
barna. Fjallað um aðrar kennslustefnur
í verkgreinum, sögu þeirra sem
skólagreina og gerð
sérstök grein fyrir
kennslufræði
nýsköpunarnáms í
grunnskóla sem byggir á eigin
hugmyndum nemandans.
- Vinnulag:
Nemar gera kennsluáætlanir sem
innihalda markmið, vinnubrögð og
tímaáætlanir. Nemar gera
sýnishorn af kennsluverkefnum fyrir yngri
bekki grunnskólans, fara í eina
vettvangsferð og sitja fyrirlestra um
ýmis kennslufræðileg efni
valgreinarinnar.
- Námsmat:
Ritgerð og verkefni metin til
einkunnar.
-
- 20.48.64-200
Silfursmíði II og plastvinna
(2e)
- Tími:
4. misseri
- Umsjón:
Gísli Þorsteinsson
lektor.
- Viðfangsefni:
Í málmsmíði II er
lögð áhersla á
fínsmíði og listræna
þáttinn í
útfærslu verkefna. Nemar læra
aðferðir eins og að byggja utan um
steina (fatningasmíð), cicileringu og
tengingu málma og annarra efna eins og
akrílplasts ofl. Verkefni eru einkum
skartgripir, nytjahlutir,
skúlptúrar og lágmyndir.
Nemar fara í sjálfstæðar
vettvangsferðir og safna hugmyndum að
hönnunarverkefnum. Kenndar verða
aðferðir við mótun
akrílplasts.
- Vinnulag:
Fyrirlestrar, umræður og
verkefnavinna.
- Námsmat:
Verkefni eru metin til
einkunnar.
-
- 5
misseri 2000 (5 einingar)
-
- 20.48.51-996
Hönnun og smíði tréhluta
III (2e)
- Tími:
5. misseri.
- Umsjón:
Benóný
Eiríksson.
- Markmið
og viðfangsefni: Á
námskeiðinu er unnið að
gerð nytjahluta úr tré er
tengjast daglegu lífi fólks. Enn
fremur er unnið að gerð
kennsluverkefna fyrir unglingastig
grunnskólans tengt vettvangsnámi
á 5 misseri. Nemendur fá frekari
þjálfun í notkun
trérennibekks.
- Vinnulag:
Verkleg þjálfun er undirstaða
námsins en að öðru leyti fer
kennsla fram í fyrirlestrum,
umræðu- og
leiðsögutímum. 80%
sóknarskylda.
- Námsmat:
Einkunn fyrir smíðisgripi og
verkefnalýsingar.
-
- 21.48.42-010
Silfursmíði III og glervinna
(2e)
- Tími:
5. misseri.
- Umsjón:
Gísli Þorsteinsson
lektor.
- Viðfangsefni:
Sérstök áhersla er
lögð á
málmsmíðaverkefni sem
nýtast nemum í kennslu
ásamt nýjum viðfangsefnum eins
og vinnu með vír og teina,
blikksmíði, smelti og einfalda
járnsmíði þar sem notast
er við hlífðargassuðu. Helstu
viðfangsefni eru nytjahlutir með
listrænum áherslum. Enn fremur
verða nemendum kynntar aðferðir
við að skera, slípa og setja
saman nytjahluti úr gleri.
- Vinnulag:
Fyrirlestrar, sýnikennsla og
verkefnavinna. Vinnubók sem inniheldur
lýsingar á aðferðum
ásamt tillögum að
verkefnum.
- Námsmat:
Verkefni metin til einkunnar.
-
- 20.48.54-966
Kennslufræði hönnunar og
smíða (1e)
- Tími:
5. misseri.
- Umsjón:
NN.
- Viðfangsefni:
Æfingakennsla 6. misseris er
undirbúin með verkefnavali,
verkefnatilraunum og gerð kennsluverkefna.
Sérstök áhersla er
lögð á vinnu með eldri
börnum í grunnskóla. Nemar
gera kennsluáætlanir þar sem
gerð er grein fyrir markmiðum,
vinnubrögðum og
tímaáætlunum. Nemar fara
í eina vettvangsferð og sitja
fyrirlestra um ýmis
kennslufræðileg efni
valgreinarinnar.
- Námsmat:
Ritgerð og/eða verkefni metin til
einkunnar.
-
- 6
misseri 2001 (6 einingar)
-
- 20.48.55.200
Hönnun og smíði tréhluta
IV (2e)
- Tími:
6. misseri.
- Umsjón:
Benóný
Eiríksson.
- Markmið
og viðfangsefni: Á
námskeiðinu er áfram unnið
að gerð nytjahluta úr tré.
Sérstök áhersla er
lögð á listræna
útfærslu verkefna. Nemendur
smíða eitt verkefni sem er talsvert
margbrotnara en fyrri verkefni og inniheldur
fleiri verkþætti. Nemendur fá
frekari þjálfun í notkun
trérennibekks.
- Vinnulag:
Verkleg þjálfun er
undirstaða námsins en að
öðru leyti fer kennsla fram í
fyrirlestrum, umræðu- og
leiðsögutímum. 80%
sóknarskylda.
- Námsmat:
Einkunn fyrir smíðisgripi og
verkefnalýsingar.
-
- *20.48.62.980
Rafknúin þroskaleikföng 2
einingar
- Tími:
6. misseri.
- Umsjón:
Gísli Þorsteinsson
lektor.
- Markmið
og viðfangsefni: Sérstök
áhersla er lögð á
þessu námskeiði á
þroskaleikföng þar sem
útfærslan byggir á samspili
forms og notagildis hlutarins. Nemendur
smíða nokkur einföld verkefni er
byggja á hagnýtingu rafmagns og
læra að sogforma hitadeigt plast sem
þátt í mótun
verkefna. Skoðaðir eru möguleikar
á hagnýtingu þessarar
þekkingar í smíðavinnu
með börnum í
grunnskóla.
- Vinnulag:
Fyrirlestrar, sýnikennsla ásamt
verklegum og skriflegum
æfingum.
- Námsmat:
Verkefni metin til einkunnar.
-
- *20.48.63.980
Nýbreytni í hönnun og
smíði (2e)
- Tími:
6. misseri:
- Umsjón:
Gísli Þorsteinsson
lektor.
- Viðfangsefni:
Farið í gegnum ýmsa
nýbreytniþætti í
hönnunar- og smíðakennslu eins
og vinnu með ýmis
óhefðbundin og óalgeng efni
í smíðakennslu,
mótagerð og
fjöldaframleiðslu eigin hönnunar
með notkun steinsteypu eða flotleirs.
Vinna með horn og bein kynnt og verkefni
unnið ef tími leyfir.
- Farið
í efnisfræði og
grunnvinnuaðferðir kenndar í
gegnum verkefnavinnu ásamt
tækjasmíði.
- Vinnulag:
Fyrirlestrar, sýnikennsla og
verkefnavinna.
- Námsmat:
Verkefni metin til einkunnar.
|
|