Verkefnaskil 5.des.
 
1. Námsmatsform / skólanámskrá.
2.
.Hönnunarverkefni (val).
 
     Hugmyndavinnuþátturinn
 
Ég vil benda ykkur á eftirtaldar uppsprettur hugmynda.
1. Tala við næsta mann.
2. Athuga hvað er í gangi í skólum og hvað krökkum finnst og finna hliðstæður.
3. Leita á vefnum t.d. á vefgátt undir hugmyndaleit.
4. Skoða gamlar skólanámskrár, sbr, mína sem ég lét ykkur hafa í haust.
5. Skoða hluti á heimilum sem þíð heimsækið og þar með talið ykkar. Er
eitthvað sem við gætum gert að verkefni?
6. Blöð og bækur og búðargluggar eru oft uppspretta hugmynda.
7. Tala við starfandi kennara og fá hugmyndir.
 
 
 
 

 
 
 

 

 

 
 
 
 

 

 


1. Námsmatsform / skólanámskrá. (til baka).
 
Forskrift fyrir námsmat
Setjið upp eftirfarandi námsmatsform fyrir hönnun og smíði í töfluformi. Útfærsla er að mestu frjáls innan ramma námskrárinnar. Heppilegt er að nota exelform við símatið.
 
a) Sjálfsmatsform þar sem nemandinn metur eigin vinnu út frá þeim atriðum sem þið viljið að hann sé meðvitaður um. Sjálfsmat nemanda felur í sér að nemandinn meti sjálfur gengi sitt í námi og hvernig honum tekst upp við verkefnin. Ekki er mælst til þess í námskrá fyrir hönnun og smíði að sjálfsmatið sé hluti lokaeinkunnar. Tilgangur þess er að þroska innsæi nemandans í verklega og tæknilega þætti verklegra framkvæmda.
b) Símatsform fyrir kennara (exeltafla sem merkt er inn á) þar sem fram koma þættir í hönnunar- og smíðagreininni sem alltaf er verið að símeta. Símat kennara felur í sér að kennari meti, t.d. tvisvar á önn, að minnsta kosti 8 þætti í verklagi nemenda:
 
hugmyndaauðgi og hönnun
umgengni og hegðun
verkfærni og vandvirkni
iðni og afköst
 
Ágætt er að nota kvarðann + eða - til að meta þessa þætti. Mælst er til að símatið sé aðgengilegt foreldrum á foreldradegi.
 
 
 
Forskrift fyrir skólanámskrá
Setjið upp skólanámskrá fyrir einn aldur í hönnun og smíði. Lýsingin á að taka mið af þrepamarkmiðum í námskrá og ekki spanna meira en eina bls. Nýtið eitt af verkefnunum sem þið smíðuðuð sem kennsluverkefni til að ganga út frá.
 
meginviðfangsefni
hönnun og nýsköpunarþáttur
tæknigrunnur
handverksáherslur
eðlisþættir
námsmat
fleiri hugmyndir
 
Skoðið nánar framsetningu í námskrá fyrir hönnun og smíði.
 
 
 
 
 
 

 

 

 

 
 

 

 
 

 

 

 
 
 

2. Hönnunarverkefni (val) / trésmíði III (til baka).
Veljið um eitt af þremur hönnunarverkefnum sem hér koma á eftir. Þau eru hugsuð fyrir miðstigið og upp úr. Eðlilegast er að gera sér grein fyrir þörfunum og síðan teikna útfærsluna áður en smíðin hefst.
 
Markmiðið með þessum verkefnum er að þjálfa sig í vinnuferli frá hugmynd til afurðar
þar sem gerðar eru kröfur um lausn ákveðinna þátta.

 

1. Fígúra með hreyfanlegum hluta

2. Minnisrúllugeymsla

3. Teygjudrif

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

1. Fígúra með hreyfanleika   

Hannaðu og smíðaðu útsagaða fígúru og hluti hennar á að hreyfast þegar henni er trillað áfram.

Hreyfingin er sköpuð með hjámiðjuhjóli. Fígúran getur verið í raun hvað sem er.

Eðlilegt er að hafa hana í stærð sem hentar krökkum.

 

Hjámiðjuhjól
 
Efni: Gegnheill viður eins og 6 mm fura eða krossviður.
Yfirborðsmeðferð: Lökkun, olíuburður eða málun
 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

2. Minnisrúllugeymsla     
Hannaðu og smíðaðu geymslu fyrir minnismiðarúllu, þar sem gert er ráð fyrir blýöntum og pennum. Notandinn verður að hafa smá flöt til að skrifa á og auðveltverður að vera að taka rúlluna upp úr og skipta um.
 
 
 
Útfærsluferillinn gæti t.d. verið: Gera sér grein fyrir hvernig rúllan á að dragast út(sjá mynd að ofan), og svo hvar blýantur og penni á að staðsetjast, mæla stærðina, skitsa útfærslu, leita að efni og smíða.
 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

3. Teygjudrifið farartæki á borði    
Hannaðu og smíðaðu farartæki sem keyrir á borði og er teygjudrifið. Útfærslan er frjáls. Hægt er til dæmis að nota messingbút til að halda teygjunni fastri, getur verið trébútur.
 
Efni: Td messingbútur, teygja, gardínukrókar, suðuvír trékubbur, mdf plata ....

Farartæki (t.d.)