Verkefnaskil 24.sept.
 
1. Lítil fljótgerð kennsluverkefni (abc).
2. Kennsluverkefni / nytjahlutur.
3. Kennsluverkefni fyrir 6-7. bekk.
4. Latexmót (minnismiðahaldarar á ísskáp).  
 
     Hugmyndavinnuþátturinn
 
Ég vil benda ykkur á eftirtaldar uppsprettur hugmynda.
1. Tala við næsta mann.
2. Athuga hvað er í gangi í skólum og hvað krökkum finnst og finna hliðstæður.
3. Leita á vefnum t.d. á vefgátt undir hugmyndaleit.
4. Skoða gamlar skólanámskrár, sbr, mína sem ég lét ykkur hafa í haust.
5. Skoða hluti á heimilum sem þíð heimsækið og þar með talið ykkar. Er
eitthvað sem við gætum gert að verkefni?
6. Blöð og bækur og búðargluggar eru oft uppspretta hugmynda.
7. Tala við starfandi kennara og fá hugmyndir.
 
 
 
 

1. Lítil fljótgerð kennsluverkefni (til baka).
    (abc) einbúaspil, númerang, teningur.
 
Ekki er nauðsynlegt eins og við töluðum um að gera nákvæmlega þessi verkefni, eina skilyrðið er að þau taki 1 - 2 tíma og séu stutt en skemmtileg verkefni sem nemandinn getur gert á milli lengri verkefna t.d. þegar hann er að spá í næsta stærra verkefni.
 
Skoðið eftirfarandi slóð
http://smidi.khi.is/spil/
 

Kennsluverkefnalýsing á að fylgja verkefninu ( á pc formi, smella á link):  

Notastu við eftirfarandi formgerð og gerðu innlögninni sérstaklega góð skil með dæmi.

Kennsluverkefni fyrir ______ bekk

Skóli _____________________________Kennari______________

Heiti verkefnis ______________________ Tímalengd ___________

Markmið: Settu markmið fyrir verkefninu og skiptu þeim í eftirfarandi þrjá þætti.

a) Færni: Hvað færniþættir þjálfast í gegnum verkefnið?
b) Þekking: Hvað þekkingarþættir eiga að koma fram í verkefninu, sbr. innlagnir?
c) Sköpun: Þáttur nemandans í mótun verkefnisins.

Teikning: Gerðu útlitsteikningu af hlutnum.

Efni: Hvað efni á að nota og afhverju?

Áhöld: Hvað áhöld þarf að nota við gerð verkefnisins?

Innlögn: Hvernig ætlar þú að vekja áhuga nemandans og hvernig ætlar þú að leggja verkefnið inn? Og hvernig ætlar þú að virkja sköpunargáfu barnsins? Gerðu þessu góð skil með dæmi.

Verklýsing: Rektu feril hinnar verklegu framkvæmdar.

Yfirborðsmeðferð: Hvaða yfirborðsefni ætlar þú að kenna nemandanum að nota og hvernig?

Notagildi / listrænt gildi / tæknilæsi: Gerðu grein fyrir því hvernig þessi þættir koma fram í verkefninu.

Námsmat: Hvernig ætlar þú að meta vinnu nemandans og verkefnið? 

 

 

2. Kennsluverkefni / nytjahlutur / málmsmíðin (til baka).
 
Hér er spurning um að vera ekki að endurtaka fyrri verekni, heldur gera nytjahlut sem verekefni fyrir unglingastigið.
Hugsið um færniþætti eins og útsögun, þjölun, beygja, forma pússa og pólera. Svo að nemendinn útfæri form og leggið inn einhvern þekkingarþátt í leiðinni. Skilið á kennsluverkefnaformi sbr. fyrri verkefni.
 

Kennsluverkefnalýsing á að fylgja verkefninu ( á pc formi, smella á link):  

Notastu við eftirfarandi formgerð og gerðu innlögninni sérstaklega góð skil með dæmi.

Kennsluverkefni fyrir ______ bekk

Skóli _____________________________Kennari______________

Heiti verkefnis ______________________ Tímalengd ___________

Markmið: Settu markmið fyrir verkefninu og skiptu þeim í eftirfarandi þrjá þætti.

a) Færni: Hvað færniþættir þjálfast í gegnum verkefnið?
b) Þekking: Hvað þekkingarþættir eiga að koma fram í verkefninu, sbr. innlagnir?
c) Sköpun: Þáttur nemandans í mótun verkefnisins.

Teikning: Gerðu útlitsteikningu af hlutnum.

Efni: Hvað efni á að nota og afhverju?

Áhöld: Hvað áhöld þarf að nota við gerð verkefnisins?

Innlögn: Hvernig ætlar þú að vekja áhuga nemandans og hvernig ætlar þú að leggja verkefnið inn? Og hvernig ætlar þú að virkja sköpunargáfu barnsins? Gerðu þessu góð skil með dæmi.

Verklýsing: Rektu feril hinnar verklegu framkvæmdar.

Yfirborðsmeðferð: Hvaða yfirborðsefni ætlar þú að kenna nemandanum að nota og hvernig?

Notagildi / listrænt gildi / tæknilæsi: Gerðu grein fyrir því hvernig þessi þættir koma fram í verkefninu.

Námsmat: Hvernig ætlar þú að meta vinnu nemandans og verkefnið? 

 

 
 
 

3. Kennsluverkefni fyrir 6-7. bekk (til baka).
 
Um er að ræða trésmíðaverkefni og á þessum aldri er nemendinn farinn að ráða við verkfæri eins og hefil og getur formað og sagað út.
Ég mæli með einföldum nytjahlut, eitthvað sem þið hafið ekki gert áður, en þið teljið höfða til viðkomandi aldurs. Skilið á kennsluverkefnaformi sbr. fyrri verkefni.
 

Hannaðu og smíðaðu dæmi um verkefni fyrir 8 - 9 ára börn með tilliti til aðalnámskrár grunnskóla fyrir "Hönnun og smíði". Leitaðu fanga í þínum eigin huga eða fáðu hugmyndir í gegnum skoðun á tilteknum aldurshópi, áhugamálum hans og getu. Leggðu áherslu á að verkefnið sé nytjahlutur.

Reyndu að fara ekki hefðbundnar leiðir heldur vinna mað nýjar hugmyndir.

Kíktu á nokkrar hugmyndauppsprettur sem geta leitt kennarann inn á nýjar brautir kennslunni og upp úr gamla farinu.

Kennsluverkefnalýsing á að fylgja verkefninu ( á pc formi, smella á link):  

Notastu við eftirfarandi formgerð og gerðu innlögninni sérstaklega góð skil með dæmi.

Kennsluverkefni fyrir ______ bekk

Skóli _____________________________Kennari______________

Heiti verkefnis ______________________ Tímalengd ___________

Markmið: Settu markmið fyrir verkefninu og skiptu þeim í eftirfarandi þrjá þætti.

a) Færni: Hvað færniþættir þjálfast í gegnum verkefnið?
b) Þekking: Hvað þekkingarþættir eiga að koma fram í verkefninu, sbr. innlagnir?
c) Sköpun: Þáttur nemandans í mótun verkefnisins.

Teikning: Gerðu útlitsteikningu af hlutnum.

Efni: Hvað efni á að nota og afhverju?

Áhöld: Hvað áhöld þarf að nota við gerð verkefnisins?

Innlögn: Hvernig ætlar þú að vekja áhuga nemandans og hvernig ætlar þú að leggja verkefnið inn? Og hvernig ætlar þú að virkja sköpunargáfu barnsins? Gerðu þessu góð skil með dæmi.

Verklýsing: Rektu feril hinnar verklegu framkvæmdar.

Yfirborðsmeðferð: Hvaða yfirborðsefni ætlar þú að kenna nemandanum að nota og hvernig?

Notagildi / listrænt gildi / tæknilæsi: Gerðu grein fyrir því hvernig þessi þættir koma fram í verkefninu.

Námsmat: Hvernig ætlar þú að meta vinnu nemandans og verkefnið? 

 

 

 


 4. Latexmót (minnismiðahaldarar á ísskáp)  (til baka).
 
Allir eiga latexmót sem þeir gerðu í haust og nú þarf að steypa í það með gifsi, mála það og setja segul aftan á sem er minnismiðahaldarinn.
 
Ferillinn
1. Gera 4 frumgerðir úr mdf.
2. Pensla á 7 umferðir með latexi. Óhætt er að þurrka með hitablásara á milli umferða.
3. Búa til stoðmót úr gifsi, áður en steypt er. Búa til lítinn kassa og leggja frumgerðir á hvolf og svo hella gifsi yfir. Taka út móti þegar er orðið þurrt. Er ekki nauðsynlegt.
4. Fletta af.
5. Steypa í með gifsi. Muna að blöndunin byggir á að metta vatnið sem gifsið er blandað í og það sést þegar gifsið fer að fljóta ofan á.
6. Afurðir teknar úr og kantar lagaðir til með fínum sandpappír.
7. Málað með akríllitum og lakkað með glæru.
8. Seglar límdir aftan á með kontaktlími.