Verkefnaskil 12.nóv.
 
1. Kúluspil / hönnunarverkefni.
2. Hönnunarverkefni / val.
3. Kennsluverkefni fyrir 8. - 9. bekk.
 
     Hugmyndavinnuþátturinn
 
Ég vil benda ykkur á eftirtaldar uppsprettur hugmynda.
1. Tala við næsta mann.
2. Athuga hvað er í gangi í skólum og hvað krökkum finnst og finna hliðstæður.
3. Leita á vefnum t.d. á vefgátt undir hugmyndaleit.
4. Skoða gamlar skólanámskrár, sbr, mína sem ég lét ykkur hafa í haust.
5. Skoða hluti á heimilum sem þíð heimsækið og þar með talið ykkar. Er
eitthvað sem við gætum gert að verkefni?
6. Blöð og bækur og búðargluggar eru oft uppspretta hugmynda.
7. Tala við starfandi kennara og fá hugmyndir.
 
 
 
 

1. Kúluspil / hönnunarverkefni / trésmíði III (til baka).
     
Forskrift: Hannaðu og smíðaðu einfalt kúluspil úr tré. Skilgreindu virknina fyrirfram og aðlagaðu útlitshönnunina að henni.
 
Virkniþættir.
1. Hvernig kúlu er skotið upp hægt er að búa til skotrennu og nota puttann, nota teygju eða gorm.
2. Hvernig kúlan fer um kúluspilið, hvar hún rekst í og hvar hún lendir sbr. stigagjöf.
3. Hvernig kúlan fer niður og var kúlan lendir. Hér er best að hafa halla á spilinu.

Grunnuppbygging.

Vinnuferillinn:

1. Teikna nokkrar hugmyndir. Spá vel í virkni spilsins.
2. Klippa út skapalón úr kartoni.
4. Laga útlit að virkni hugmyndar.
5. Saga út grunnplötu úr 12mdf eða krossviði eða þykkara efni.
6. Búa til kant í kringum spilið t.d. úr 4mm krossviðsrenningum. Hægt er að bleyta krossvið og forma í boga að framan ef vill.
7. Tengja saman kant og grunnplötu með lími og hugsanlega nöglum.
8. Setja þá hluta er móta virknina eins og staðsetningu kúlunnar á ákveðnum stöðum.

Verkefnalýsing hefðbundin.

 
Dæmi má finna á netinu.
http://www.ismennt.is/not/oskbir/s9.htm
Netleiku.r
http://www.quadgames.com/games/highgear.html
 

 

 
 
 

 

 

2. Hönnunarverkefni / val / málmsmíðin (til baka).
 
Forskrift: Hannaðu og smíðaðu einfaldan samsettan eða ósamsettan nytjahlut út látúni, kopar eða nýsilfri. Útfærslan er frjáls.
 
Efni: 1,0 - 1,5 mm látún, kopar eða nýsilfur.
 
Hugmyndin: Góð leit til að finna hugmyndir er að trítla um eigin húsnæði og skoða gamla nytjahluti, leita á vefnum eða fara í verslanir. Og svo má ekki gleyma eigin hugskoti.
 
Tillögur: Kertastjakar, haldarar ýmis konar, lampi á vegg eða borð, spil, pennastandur........
Ferillinn:
1. Finna hugmyndina.
2. Skitsa nokkrar útgáfur.
3. Teikna í fullri stærð.
4. Finna efni og líma á og saga út.
5. Þjala, pússa og pólera.
6. Beygja ef þarf.
7. Prófa hlut.

 




 
 

 

 
 
 

3. Kennsluverkefni fyrir 8- 9. bekk (til baka).
 
Um er að ræða trésmíðaverkefni og á þessum aldri er nemendinn farinn að ráða við verkfæri eins og hefil og getur formað og sagað út og því sjálfsagt að leyfa notkun tifsagar.
Ég mæli með einföldum nytjahlut, eitthvað sem þið hafið ekki gert áður, en þið teljið höfða til viðkomandi aldurs. Skilið á kennsluverkefnaformi sbr. fyrri verkefni.

Hannaðu og smíðaðu dæmi um verkefni fyrir 8-9 bekk með tilliti til aðalnámskrár grunnskóla fyrir "Hönnun og smíði". Leitaðu fanga í þínum eigin huga eða fáðu hugmyndir í gegnum skoðun á tilteknum aldurshópi, áhugamálum hans og getu. Leggðu áherslu á að verkefnið sé nytjahlutur.

Reyndu að fara ekki hefðbundnar leiðir heldur vinna með nýjar hugmyndir.

Kíktu á nokkrar hugmyndauppsprettur sem geta leitt kennarann inn á nýjar brautir kennslunni og upp úr gamla farinu.

Kennsluverkefnalýsing á að fylgja verkefninu ( á pc formi, smella á link):  

Notastu við eftirfarandi formgerð og gerðu innlögninni sérstaklega góð skil með dæmi.

Kennsluverkefni fyrir ______ bekk

Skóli _____________________________Kennari______________

Heiti verkefnis ______________________ Tímalengd ___________

Markmið: Settu markmið fyrir verkefninu og skiptu þeim í eftirfarandi þrjá þætti.

a) Færni: Hvað færniþættir þjálfast í gegnum verkefnið?
b) Þekking: Hvað þekkingarþættir eiga að koma fram í verkefninu, sbr. innlagnir?
c) Sköpun: Þáttur nemandans í mótun verkefnisins.

Teikning: Gerðu útlitsteikningu af hlutnum.

Efni: Hvað efni á að nota og afhverju?

Áhöld: Hvað áhöld þarf að nota við gerð verkefnisins?

Innlögn: Hvernig ætlar þú að vekja áhuga nemandans og hvernig ætlar þú að leggja verkefnið inn? Og hvernig ætlar þú að virkja sköpunargáfu barnsins? Gerðu þessu góð skil með dæmi.

Verklýsing: Rektu feril hinnar verklegu framkvæmdar.

Yfirborðsmeðferð: Hvaða yfirborðsefni ætlar þú að kenna nemandanum að nota og hvernig?

Notagildi / listrænt gildi / tæknilæsi: Gerðu grein fyrir því hvernig þessi þættir koma fram í verkefninu.

Námsmat: Hvernig ætlar þú að meta vinnu nemandans og verkefnið?