| Arnar Hauksson 120475-3479 GissurJónsson © Gissur og Arnar 2000 |
SKAFTFELLSKIR TORFBÆIR
|
|
Myndasíða frá Hnausum Viðtal við Sæmund Uppdráttur af Holti Lýsing á baðstofulífi Meira um torfbæi |
Sjálfsagt þykir Íslendingum langt síðan forfeður þeirra bjuggu í torfbæjum. Í því nútímasamfélagi sem við lifum og hrærumst í þykir sjálfsagt að búa í upphituðu timbur- eða steinhúsi. Hins vegar er ekki langt síðan helstu vistarverur íbúa landsins voru torfbæir. Víðsvegar um landið má sjá rústir torfbæja og vandfundinn er sá einstaklingur sem ekki á skyldmenni sem búið hefur í torfbæ einhvern tímann á lífsleiðinni. Því er auðvelt að afla sér einhverra heimilda um líf landans í torfbæjum áður fyrr. Við ákváðum að einbeita okkur að torfbæjum í Skaftafellssýslum. Því tókum við ljósmyndir af endurgerðu fjósi við Hnausa í Meðallandi. Auk þess er viðtal sem við tókum við Sæmund Þorsteinsson frá Holti sem bjó í torfbæ til 23 ára aldurs. Síðan var seinast uppfærð 09.02.01 |