Kvígindisfjörður

 

 

Ég heiti Ásrún Atladóttir og vann þetta verkefni um Kvígindisfjörð í Sagnfræði og sögu, áfanga sem ég tók í Kennaraháskólanum haustið 2002.

Fimmtudaginn 31. okt. 2002 lagði ég leið mína í heimsókn til Sæmundar Guðmundssonar í  Ekrusmára 1, í Kópavogi. Ég var áður búin að hringja í hann og spyrja hvort hann vildi tala við mig um bæinn sem hann ólst upp í. Sæmundur tók mér afar vel, og þegar ég kom var hann búinn að undirbúa sig mjög vel.

Ég fór aftur til Sæmundar 21. nóv. og þá með manninum mínum, því mig langaði að fá teikningu af bænum eftir lýsingu Sæmundar, og ætlaði maðurinn minn að teikna bæinn. Sæmundur var þá eins og fyrra skiptið búin að undirbúa sig allnokkuð. Hann var búin að hitta bróður sinn og þeir í sameiningu að teikna bæinn upp. Ég fékk þá líka mynd af bænum.

Þetta viðtal sem hér fer á eftir fór þannig fram að ég var með segulband og tók allt upp sem hann sagði. Ég skrifaði þetta svo nánast orðrétt upp eftir honum.

Sæmundur Guðmundsson fæddist í Kvígindisfirði í Austur Barðastrandasýslu 1. ágúst 1930. Hann ólst þar upp ásamt systkinum sínum sjö. Upp úr fermingu fer hann að fara að heiman yfir veturna, þá á næsta bæ til  vinnu. Yfir sumarið var hann heima að aðstoða við heyskapinn ásamt því að vera í kaupavinnu á bæjunum í sveitinni. Alfarinn að heiman fer hann 19 - 20 ára. Bærinn í Kvígindisfirði er í byggð til 1967, þá er faðir hans dáinn. Móðir hans flutti til Reykjavíkur og er tiltölulega ný dáin.

 

®Ásrún Atladóttir 23. nóv.2002

Efst á síðu