Kirkjuból

 

Torfbærinn Kirkjuból í Múlasveit í Barðastrandasýslu var byggður 1924.  Áður hafði verið þar fyrir annar eldri bær.  Kirkjuból var frekar stór bær.  Á hliðinni á bænum var eins konar forstofa, þar sem var inngangur. Upp á lofti var tréstigi þar sem baðstofan var en þar var trégólf og sex rúm.  Fullorðnir og börn sváfu tveir og tveir saman í rekkjum.  Eldhúsið var niðri og þar var moldargólf og torfveggir.  Borð var við eldhúsgluggann þar sem áhöldin voru geymd en konurnar á bænum borðuðu þar einnig.  Maturinn var borinn upp stigann í karlmennina en þar borðuðu  þeir.  Niðri var stofa sem var sofið í og var notuð sem svefnstaður fyrir heimafólkið og þegar gesti bar að garði.

Innangengt var úr bænum í þrjár burstir en sá fyrsti var notaður fyrir geymslu á mat en maturinn var allur saltaður og reyktur.  Burstin við hliðina var notaður fyrir geymslu á eldivið og fleiru.  Síðasti burstin var notaður undir hesthús en síðar var hann notaður fyrir hænsni. Hlóðirnar voru einnig niðri en þar var maturinn eldaður og þvotturinn þveginn. Fjósið var á bak við bæinn og var innangengt í það úr torfbænum.

Hlaðinn brunnur stóð á hlaðinu fyrir framan bæinn en þar var náð í allt vatn, einnig fyrir kýrnar þegar það var kalt úti og þær komust ekki út.