Ég heiti Ásdís Arnkelsdóttir og er nemandi í Kennaraháskóla Íslands. Ástæðan fyrir því að þessar síður eru gerðar er af því að ég er í sagnfræði og sögunámi og þetta er eitt af vekefnunum þar. Við áttum að finna fólk sem hafði búið á torfbæ og taka viðtal við það.
Ég tók viðtal við tvær systur sem höfðu búið á torfbæ. Með milligöngu vinkonu minnar sem er vistmaður á Hrafnistu í Hafnarfirði varð viðtalið að veruleika.
Ég hitti þær systur á Hrafnistu, laugardaginn 20.október 2001. Systurnar tóku þessari ókunnu manneskju mjög vel og voru mér mjög hjálplegar. Ég skrifaði viðtalið niður spurði þær spurninga og þær svöruðu. Kann ég þeim bestu þakkir fyrir.