Salvör Gissurardóttir

5. febrúar 2003

Hér er dæmi um hvernig tengingar eru settar upp í Dreamweaver MX milli heimavélar (local site) og vefsvæðis á vefþjóni (remote site)

Á heimatölvu hefur verið búin til mappan sites og undir henni mappan draumar. Mappan draumar á að geyma allt sem fer á vefsvæðið.

Hér er gert ráð fyrir að notandinn sé á vefþjóni notendur.snerpa.is (ftp host name)og hafi notendanafnið eths

Athugaðu að þú getur líka séð beint í Internet Explorer það sem er á heimavæðinu þínu og flutt yfir skjöl og myndir með að setja í address:
ftp://eths@notendur.snerpa.is
eða á ísmennt ftp://notendanafn@notendanafn.ismennt.is

 

Þrep 1 - Gefa vefsvæðinu nafn (þetta nafn er bara fyrir þig, má hafa íslenska stafi)

Þrep 2 Ekki velja að nota server technology

Þrep 3. Velja að maður vilji vinna fyrst á heimatölvu og flytja svo yfir á vefsvæði.

Þrep 4 - Segja hvernig maður vill tengjast (Velja FTP með að smella í flipann með litlu örinni)
þá detta niður þessi innsláttargluggar. Hér á að slá inn hver vefþjónninn er
Vefþjónninn á snerpu er notendur.snerpa.is
Vefþjónninn á ísmennt er www.ismennt.is (eða notendanafn.ismennt.is)
Vefþjónninn á símnet er heim.simnet.is

Þrep 5 Prófa tenginguna (test connection) ef allt virkar og samband næst er allt í lagi.

Þrep 6 Haka við að það þurfi ekki check in/check out.

Þrep 7. Þá koma upplýsingar um hvernig tenging hefur verið sett upp.

Þrep 9. Prófa að smella á expand/collapse gluggann hjá Sites (lengst til hægri)
Til að tengjast vefsvæði þá verður að smella á tengilinn, þá kemur grænt ljós á hann.
Tenging rofnar eftir einhvern tíma, einnig hægt að smella aftur til að rjúfa tengingu.

 

Þrep 10. Gerðu eina vefsíðu prufa.htm og búðu til möppu myndir og settu eina mynd í hana.
Skrifaðu eitthvað á vefsíðuna og dragðu myndina yfir á hana og vistaðu vefsíðuna.

Þrep 11 - Tengdu þig aftur við vefsvæðið.Þegar tenging hefur komið þá getur þú flutt vefsíðuna prufa.htm yfir á vefsvæðið með því að draga hana (eða hafa ljómað og smella á bláu örina)

Þrep 12 - Ef vefsíðan kallar á myndir kemur þessi orðsending. smelltu á Yes.

Þrep 13 - Þá er vefsíðan og öll skjöl sem hún notar komin á vefsvæðið.
Það getur verið eitthvað fyrir á vefsvæðinu t.d. Frontpage vefir.
Ef þú ert með annað á vefsvæðinu gætir þú haft það í sitt hvorri möppunni.

Þrep 14 Hvernig kallað er á vefsíðuna.
Á hverju heimasvæði (eða inn í hverri möppu) verður að vera vefsíða sem heitir index.htm
Þá þarf ekki að gefa upp endingu á vefsíðum.

Til að kalla beint á þessa vefsíðu prufa.htm í Internet Explorer:

notendur.snerpa.is/eths/prufa.htm

á ísmennt myndum við kalla á þessa vefsíðu
www.ismennt.is/not/eths/prufa.htm