Nám og kennsla á Netinu 2004
Myndvinnsla - Fireworks
og örlítið um Photoshop


Heimasíða nkn

Heim - um vefinn
Stafrænar myndir
Myndvinnsla f. Netið
Krækjur og ítarefni

Um FireworksMX
Leiðbeiningar:
Opna nýtt / ná í mynd
Stækka/minnka
Birtu / skerpu breytt
Unnið með texta
Lög
Form til margra nota
Vistað f. Netið
Fyrir lengrakomna

Um Fireworks 4 frá
Lexía 1
Lexía 2
Lexía 3
Lexía 4

Um Photoshop

Glærur frá 12. jan '04

 

x
 

Stafrænar myndir

Hér verður stuttlega fjallað um nokkur helstu atriði er varða stafrænar myndir; myndsnið og myndvinnsluforrit. Ekki verður fjallað um hreyfimyndir (s.s. Flash) eða myndbönd.

Þegar rætt er hér um stafrænt myndefni er átt við myndir sem hægt er að vinna með í tölvum en það getur verið myndefni af ýmsum toga. Hægt er að skanna inn allar mögulegar myndir. Auðvelt er að búa til myndir í teikni- eða myndvinnsluforritum. Stafrænar ljósmyndavélar bjóða einnig upp á marga möguleika. Á Netinu eru myndasöfn með miklu úrvali af myndefni, ókeypis og gegn gjaldi. Jafnframt er hægt er að fá myndasöfn á diskum. Séu notaðar myndir eftir aðra skal þess gætt að ekki sé brotið á höfundarétti. Leiki vafi á því hvort megi nota mynd, skal hafa samband við rétthafa eða þann sem sér um síðuna þar sem myndina er að finna.

Bitmap (punktar) og vector (vigrar)
Stafrænum myndum má skipta í tvo meginflokka eftir því hvernig þær eru búnar til og vistaðar í tölvum:

  • Bitmap eru myndir sem byggjast á upplýsingum um punkta (pixel), þ.e. hvernig mismunandi litir punktar raðast saman. Undir þennan flokk fellur stærsti hluti mynda, þar með allar ljósmyndir og flest myndvinnsluforrit vinna með myndir á þennan hátt. Skjáir eru almennt með upplausn sem er 1024 * 768 punktar (pixlar).
  • Vectora myndir (vigrar) eru myndir þar sem liggja að baki stærðfræðilegar upplýsingar um lögun og hlutföll forma. Þessar myndir eru oftast einfaldar og innihalda ekki marga litatóna. Meðal kosta vektora mynda er að þær má stækka án þess að gæði minnki (þ.e. að upplausnin verður ekki gróf). Forrit s.s. FeeHand og Illustrator vinna með vigra.

Mismunandi myndsnið
Hægt er að vista myndir á margskonar sniði. Það fer meðal annars eftir því hvaða forrit verið er að nota. Útbreidd og fullkomin forrit hafa mörg sitt eigið snið og ef vistað er á þeim geymast allar upplýsingar um lagskiptingar (layers) og fleira. Sum myndsnið (t.d. Tiff og PSP) passa þannig vel upp á allar upplýsingar um myndir, þau henta vel þegar verið er að undirbúa myndir fyrir gæðaprentun eða þegar verið er að laga myndir.

Þegar verið er að vinna myndir fyrir vefinn er mikilvægt að myndir taki sem minnst pláss svo að vefsíðan sé ekki lengi að koma upp hjá þeim sem skoðar hana. Því er nauðsynlegt að nota myndsnið sem þjappar upplýsingum um myndir.

Tvö myndsnið er langmest notuð fyrir vefinn:

  • JPG (stundum einnig nefnt JPEG) er notað fyrir myndir sem innihalda marga liti og tóna, s.s. ljósmyndir.
  • GIF er notað þegar um er að ræða einfaldar myndir t.d. clipart (einnig hreyfimyndir), hnappa og þar sem bakgrunnur mynda á að vera gegnsær.

PNG er þriðji kosturinn en það snið er lítið notað. Það er því rétt að gæta að því þegar mynd sem á að fara á vef eru vistuð, hvort JPG eða GIF snið hentar, þannig að hún taki sem minnst pláss

Myndvinnsluforrit
Til eru mörg og margvíslega forrit til að vinna með stafrænar myndir. Oft er þeim ætlað eitt hlutverk fremur en annað. Það mætti telja upp mörg en hér eru nokkur dæmi.

PhotoShop er t.d. vinsælt og útbreytt myndvinnsluforrit. Það er mikið notað af fagfólki en fyrir leikmenn er líka gaman að nota það. Forritið býður upp á nær óteljandi möguleika en það er mikið notað þegar verið er að vinna myndir til prentunnar.

PaintShop Pro er að mörgu leyti líkt PhotoShop en mun ódýrara og aðeins einfaldara. Það getur því verið góður kostur þeirra sem áhuga hafa á myndvinnslu en þurfa ekki á því fullkomnasta að halda.

FreeHand og Illustrator eru forrit sem grafískir hönnuðir nota mikið. Þau eru frekar notuð til að teikna en vinna með t.d. ljósmyndir.

Fireworks er forrit sem er gert til að vinna myndefni fyrir Netið. Það má þó vel nota það í öðrum tilgangi.

Myndvinnsluforrit eiga ýmislegt sameiginlegt, t.d. að unnið er með lagskiptingu (layers), tákn (icon) fyrir verkfæri og hvernig þau eru notuð er svipað frá einu forriti til annars. Þannig að með því að ná góðum tökum á einu forriti er auðveldara að setja sig inn í annað.

Ekki gefast upp
Vinna með stafrænar myndir getur stundum krafist þolinmæði, sérstaklega ef ekki mikil reynsla er fyrir hendi. Það er því stundum nauðsynlegt að draga djúpt andann og slaka á.

© 2004 Björn Sigurðsson - Síðast uppfært 02.03.2004