margmiðlun
til náms og kennslu
vor 2004


 

Kennaraháskóli Íslands - Framhaldsdeild
33.39.08.040 Margmiðlun til náms og kennslu (5e)
  Vor 2004
Umsjón: Salvör Gissurardóttir lektor og Stefán Jökulsson lektor

Dagskrá fyrir staðbundna lotu 9 - 10 mars
Símatími hjá Stefáni Jökulsyni milli kl. 4 og 5 á miðvikudögum og 13 og 14 á laugardögum. Síminn er  563 4838.

Umræður fara fram á WebCT
KHI601 Margmiðlun til náms og kennslu - 33.39.08.040
Leiðbeiningar með WebCT

Stuttmyndir:
Forsetaheimsókn í Listgreinahús 4. nóvember 2003 (Salvör)
Tími í heimilisfræði í Listgreinahúsi 3. febrúar 2004 (Salvör)

Stuttmyndir teknar í tíma í staðbundnu lotunni í janúar (Salvör og nemendur)

FLASH Kynning
búið til í webdesignhq

Kennsla hefst á Neti 6. janúar 2004
Lota 1 : 6. janúar - 25 janúar FJARNÁM
Lota 2 : 26 janúar - 27 janúar STAÐNÁM í KHÍ
Lota 3 : 28 janúar - 8 mars FJARNÁM
Lota 4 : 9 mars - 10 mars STAÐNÁM í KHÍ
Lota 5 : 11 mars -18 apríl FJARNÁM
Lota 6: 19 apríl - 20 apríl STAÐNÁM í KHÍ
Lota 7: 21 apríl - 1 maí FJARNÁM

Skyldumæting er í staðbundnar lotur

Sjá nánar um skipulag þ.e. tímaáætlun, verkefnaáætlun og skiladagsetningar
Sjá dagskrá staðbundinnar lotu 26 til 27 janúar.

æfing í Movie Maker 2 í tíma 26. janúar

Listi yfir nemendur 26. janúar
Lýsing úr kennsluskrá:

Markmið: Nemendur fjalli um kosti gagnvirkni og margmiðlunar við nám og kennslu, öðlist skilning á hönnunarferlum að baki námsefni með margmiðlunarsniði, nái tökum á ýmsum verkfærum til margmiðlunar, leiti leiða til að fella vinnu með slík verkfæri að öðru skólastarfi og fái reynslu af gerð margmiðlunarefnis.

Viðfangsefni og vinnulag: Fjallað verður um gagnvirka margmiðlun á fræðilegum grunni, einkum með tilliti til náms og kennslu. Farið verður yfir undirstöðuatriði námsefnisgerðar, handritsgerð og hönnunarferli. Sérstakri athygli verður beint að efnisbyggingu, samspili miðla, yfirbragði efnis, gagnvirkni og notendaskilum. Kynnt verða ýmis verkfæri og hugbúnaður til hljóðvinnslu, myndvinnslu og margmiðlunar. Nemendur gera efninu fræðileg skil, móta hugmyndir um notkun verkfæra til margmiðlunar í skólastarfi og spreyta sig á gerð margmiðlunarefnis af einföldum toga, gjarnan með stærri verk í huga.

Námsmat: Verkefni.

Athugasemdir/undanfari: Valnámskeið á námsbrautinni Tölvu- og upplýsingatækni.

 

Síðast uppfært 31 janúar, 2005
Salvör Gissurardóttir salvor@khi.is