
| Verkefni:
1. Gerðu kennsluefni í Powerpoint
2002 (5 til 25 glærur) um
eitthvað efni sem er þannig að það henti
til fjarkennslu þar sem fyrirlesari myndi segja eitthvað
með hverri glæru. Þetta getur líka verið sýnikennsla.
Semdu texta sem á að vera lesinn með hverri glæru.
Glærusýningin er
ppt skrá og geymdu textann
sem á að vera lesinn með hverri glæru í word skjali (eða
sem speaker notes inn í sjálfri glærusýningunni.
2. Taktu upp á stafræna videómyndavél myndbúta af
fyrirlesara að flytja textann sem á að koma undir hverri glæru.
3. Ef þú vilt getur þú bætt inn myndum (jpg eða
gif) og tónlist (mp3). 4. Setti upp
margmiðlunarsýningu í Microsoft Producer |
Powerpoint 2002
frá Microsoft
Producer fyrir Powerpoint 2002
Þetta er ókeypis viðbótarverkfæri fyrir löglega notendur Microsoft
Powerpoint 2002 og hægt er að hlaða þessu forriti niður af vefnum. Athugið
að forritið virkar eingöngu nema á tölvum með Office XP og einhverju af
þessum stýrikerfum Windows XP Professional, Windows XP Home Edition eða
Windows 2000.
Skoðaðu kynningarefni um Producer fyrir Powerpoint
Powerpoint fjarkennsluefni
**************************
Margir kunna að búa til glærur í Powerpoint. Á glærurnar setjum við
texta og myn dir og svo getum við notað okkur tilbúnar flottar
uppsetningar til að fá sama bakgrunn og texta á allar glærur.
Ef maður er að útbúa kennsluefni á tölvu er Powerpoint einna
einfaldasta kerfið til að útbúa kennsluefni sem þarf að nota t.d.
ljósmyndir. Powerpoint er líka verkfæri sem við getum notað til að útbúa
fjarkennsluefni.
Skoðaðu hérna
nokkur dæmi um glærusýningar í Powerpoint Producer.
Liður í að gera glærusýningu er að undirbúa, búa til, æfa og setja svo
tilbúna glærusýningu út á vefinn (þessi fjögur stig eru Plan, Prepare,
Practice, and Present,
sjá nánar hérna )
Um hvað á glærusýningin að vera?
Fyrir hverja á hún að vera?
Hver er tilgangur með henni?
Hvað á hún að kenna?
Powerpoint í fjarkennslu
Fjölmargir kennarar nota Powerpoint glærur fyrir
ýmis konar kynningar. Sumir kennarar nota þetta
verkfæri með nemendum þ.e. nemendur skila og kynna viðfangsefni í
Powerpoint. Einnig færist það í vöxt að fyrirlesarar setja Powerpoint
glærur út á vefinn fyrir nemendur/hlustendur til að hlaða niður.
Powerpoint nýtist í fjarkennslu bæði sem verkfæri til að setja glærurnar
óbreyttar á Netið og þá getur viðtakandi hlaðið þeim niður og skoðað þær
en einnig í kerfum eins og Real Presenter
þar sem við getum talað inn á glærur í Powerpoint og síðan
sett glærusýninguna á vefinn til að hún spilist í Real Player eða Windows
Media Player.
Það er hægt að nota Microsoft Producer til að búa til
margmiðlunarefni í Powerpoint 2002. Microsoft
Producer er hægt að hlaða ókeypis niður fyrir þá sem hafa Powerpoint 2002
og það kerfi getur tekið inn hljóð og hreyfimyndir á ýmis konar formi.
Fleiri kerfi eru til eins og Presenter.com. Ég hugsa að svona Powerpoint
sýningar séu eitt einfaldasta verkfæri sem við höfum til að búa til
margmiðlunarefni eða svona "streaming media" fyrir fjarkennslu. Ég hvet
ykkur til að skoða möguleika sem Powerpoint býður.
Ég safnaði saman slóðum yfir aðila sem bjóða Powerpoint bakgrunna o.fl. ef
það skyldi nýtast einhverjum.
Powerpoint bakgrunnar
Myndir fyrir powerpoint getum við svo fengið í
dgl.microsoft.com
Spila
tónlist af geisladiski undir Powerpoint 2002 glærusýningu
Sýna
Powerpoint 2002 á tölvu sem er ekki með forritið uppsett og ekki með
nettengingu (pack and go)
Nota hljóð, hreyfimyndir og myndskeið með glærusýningu í Powerpoint 2002
Búa til
vefleiðangur (webquest) í Powerpoint 2002
Láta
nemendur búa til kynningu á sér í Powerpoint 2002
Powerpoint kennsla:
Powerpoint in the classroom
Powerpoint tips
Effective
Presentations
Designing Effective Visuals
Kennsluefni um Powerpoint frá MS
Kennsluefni frá Hafdísi Dögg Hafsteinsdóttur
Powerpoint 2000 frá Þórunni Óskarsdóttur
Fjarnám í Powerpoint hjá Kristínu
Glærusýningarforrit - Powerpoint 2000 frá Magnúsi Þorkelssyni
Skoða nánar um fjarnám:
Kennslumiðstöð Háskóla
Íslands
Nánar um strauma
www.straumar.is |