UST í ísl. leikskólum
Heim Upp Staða þekkingar UST í ísl. leikskólum Afrakstur o.fl. Verkáæltun Heimildir Viðauki 1 Viðauki 2 Fundargerðir Famvinda L 02 Áætlun L 03-04 Niðurstöður L

 

 

Staða UST í íslenskum leikskólum

Lítið er vitað hver staða UST í leikskólunum er í dag. Ákvæði í aðalnámskrá um að taka þennan þátt inn í starfið kom fyrst fram 1999.  Leikskólarnir Sólbrekka og Mánabrekka á Seltjarnarnesi eru vafalaust með fyrstu leikskólunum sem tóku inn tölvur til að nota í starfi með börnum.  Þessir leikskólar fengu styrk úr Þróunarsjóði leikskóla 1998-1999 til að vinna að þessum málum.  Í byrjun fór allt starfsfólk þessara leikskóla á námskeið hjá fyrir­tækinu Framtíðarbörnum sem sérhæfði sig í tölvukennslu ungra barna.  Starfið í leik­skólunum byggðist fyrst að miklu leyti á áherslum frá Framtíðarbörnum þar sem kennsla á tölvur var megin viðfangsefnið.  Síðan þá hefur starfið í þessum leikskólum þróast og áherslur breyst.  Nokkrir starfsmenn fóru á samnorræna ráðstefnu um upplýsingatækni í leikskóla og kynntust þar nýjum áherslum og hugmyndum.  Í dag hafa tveir leikskóla­kennarar í þessum skólum stundað framhaldsnám í upplýsingatækni við KHÍ og einhverjir farið í námsferðir til Danmerkur til að kynna sér notkun tölva á skapandi hátt í starfi (sjá Nielsen og Nielsen1998).  Leikskólinn Funaborg fékk styrk úr Þróunarsjóði leikskóla 2001 til að vinna að verkefni á þessu sviði og í ár var ákveðið að veita verkefnum tengdum tölvunotkun í leikskóla forgang í úthlutun og sóttu 10 aðilar um styrk fyrir verkefni sem tengjast upplýsinga- og samskiptatækni á einn eða annan hátt.

Á leikskólabraut KHÍ hefur ekki verið lögð mikil áhersla á þessi mál.  Fjarnámsnemar hafa sótt undirbúningsnámskeið í notkun veraldarvefsins í náminu s.s. hvernig nota má tölvu­póst og um ýmis námsumhverfi á vef.  Þessi námskeið hafa verið frá tveimur stundum upp í átta og hafa ekki verið metin til eininga. Valnámskeið (2-3 einingar) um tölvur í leikskólastarfi hefur verið í boði frá haustinu 1999 og hefur það verið haldið þrisvar sinnum. Endurmenntunarnámskeið um tölvur í leikskólastarfi (16 stundir) hafa verið haldin þrisvar sinnum á vegum Símenntunarstofnunar KHÍ.  Ljóst er að margir leikskóla­kennarar hafa einnig sótt önnur tölvunámskeið bæði á vegum Símenntunar­stofnunar KHÍ og annarra.  Næsta haust munu allir nemendur á leikskólabraut sækja tveggja eininga nám­skeið í upplýsingatækni eins og nemendur í grunnskólabraut þar sem það hefur verið kennt síðastliðin tvö ár.

Á leikskólabraut hafa verið skrifaðar nokkrar lokaritgerðir um efnið (sjá Sigrún Björk Benediktsdóttir 1999, Anna Magnea Hreinsdóttir 1999, Guðrún Gunnarsdóttir og Sigríður Ragna Egilsson 2000 og Helena Lind Birgisdóttir 2001).

Framhaldsnám í upplýsingatækni við KHÍ hófst 1998 og hafa leikskólakennarar sótt það frá byrjun og verið um 6% nemenda.  Í ár hefur orðið mikil aukning á umsóknum í framhaldsnám KHÍ frá leikskólakennurum en þær eru um 14%.

Í framhaldsnámi í KHÍ hafa nemendur gert ýmsar athuganir og kannanir varðandi UST í leikskólastarfi.  Má þar nefna að Kristín Norðdahl (1998) gerði athugun á kynjamun í tölvunotkun nokkurra leikskólabarna.  Svala Jónsdóttir (2002) gerði athugun á gildi teikni­forrita í myndmenntarstarfi með börnum. Anna Magnea Hreinsdóttir og Kristín Guðmundsdóttir (2000) gerðu könnun á tölvunotkun leikskólabarna. Anna Magnea Hreins­dóttir vinnur nú að meistaraprófsritgerð um tölvumenningu leikskóla sem er hluti af þessu verkefni.  Einnig má nefna þau námsefnigerðarverkefni sem nefnd eru hér að neðan.

Námsefnisgerð

Nemendur í framhaldsnámi í upplýsingatækni við KHÍ hafa unnið ýmis verkefni í tengslum við námsefnisgerð. Má þar nefna vefinn Leikskólatölvuvefurinn sem ætlaður er til aðstoðar leikskólakennurum sem eru að byrja að nota UST.  Hann var gerður vorið 1999 af Kristínu Norðdahl og Svölu Jónsdóttur.  Svala Jónsdóttir er að vinna mastersverkefni, margmiðlunardisk sem ætlaður er til að kynna ungum börnum nokkra núlifandi listamenn og myndlist þeirra. Í tengslum við þá kynningu verða ýmsar spurningar, þrautir og leikir fyrir börn.  Tveir leikskólakennarar Björg Vigfúsína Kjartansdóttir og Kirsten Lybæk Vagnsgaard sem stundað hafa framhaldsnám við skólann eru að fara af stað með þróunar­verkefni þar sem þær ætla að búa til námsefni á vef fyrir börn á aldrinum 4-8 ára. Einn leikskóli sótti um styrk úr Þróunarsjóði leikskóla á þessu ári til að fara út í námsefnisgerð í tengslum við lestur á neti.

NámuUST er rannsóknarverkefni um notkun upplýsinga- og samskiptatækni í námi og kennsu.
Stofnanir sem eiga aðild að verkefninu eru: Kennaraháskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri og Háskólinn í Reykjavík.
© Allur réttur áskilinn
Vefumsjón Þuríður Jóhannsdóttir tjona@khi.is
Síðast uppfært  31.01.2006
  Verkefnið er að hluta til styrkt úr Markáætlun RANNÍS um upplýsingatækni og umhverfismál