
Ætt og
uppruni:
Er fædd á
Patreksfirði dóttir Kristins Friðþjófssonar og Elínar Oddsdóttur. Rek ættir
mínar til Barðastrandarsýslu, Strandasýslu og Þýskalands. Giftist 1973 Guðna
Jónssyni (lést 2005) úr Reykjavík og eignðumst við fjögur börn þau: Jón (f. 1975), Elínu Ragnheiði (f.
1977), Sigrúnu (f. 1979) og Kristinn (f. 1986).
Barnabörnin eru orði þrjú þau Emma Kolbrún (2004), Guðni Dagur (2006) og
Þorfinnur Tómas (2008)
Ferill,
nám og fyrristörf:
Gekk í barnaskóla
Patreksfjarðar
og lauk þar landsprófi 1970. Stúdent 1974 frá
Menntaskólanum
á
Akureyri.
Var eitt ár í
Hjúkrunarskóla Íslands en flutti til
Vestmannaeyja snemma vors 1975. Haustið 1975 fluttumst við vestur til Þingeyrar.
Eftir tveggja ára búsetu á
Þingeyri
við Dýrafjörð lá leiðin í
Kennaraháskóla Íslands 1978 og
lauk þaðan B.Ed 1981. Fluttist þá til
Grundafjarðar og stundaði þar kennslu og önnur störf þar til 1989. Sumarið 1989 fluttist fjölskyldan til
Hull í Bretlandi.
Lauk (MA) frá
University of Hull í Media and
Educational Technology árið 2000 Bjó í Hamborg
í Þýskalandi 1996 til 1999.
Veitti
Gagnasmiðju Kennaraháskólans forstöðu 1999 - 2002 og síðan Símenntunarstofnun
Kennaraháskóla Íslands frá 2002 til 2007 tók þá við forstöðu SRR - Símenntun
Rannsóknir Ráðgjöf KHÍ sem nú er SRR Háskóla Íslands.