Kaflar:![]() Hlaða upp myndum
|
Leiðarvísir Flickr Höfundur: Salvör Gissurardóttir, september 2004 ![]() Þetta er leiðarvísir með www.flickr.com sem er netsamfélag (social network) sem sýslar sérstaklega með myndir og myndstrauma. Grunnaðgangur að Flickr er ókeypis og einfalt að skrá sig. Þessar leiðbeiningar skiptast í nokkra kafla sem þú velur hér til hliðar. Dæmi um notendasvæði í flickr: http://www.flickr.com/photos/salka Dæmi um blogg sem tengt við þetta notendasvæði: http://laugarnes.blogspot.com Þú byrjar á að skrá þig inn í Flickr.com með að gefa upp netfangið þitt og lykilorð sem þú fékkst í tölvupósti. Ef þú hefur ekki fengið það í tölvupósti þá skaltu skaltu nýskrá þig í kerfið með að velja "Create a Free Acount"
Svo skaltu fara beint í að hlaða inn nokkrum myndum. Þú getur líka skoðað myndir frá öðrum - annars vegar myndstraum frá þeim sem þú hefur sett sem "contacts" þ.e. þá sem eru á þínum samskiptalista og hins vegar myndstraum yfir nýjustu myndir frá öllum notendum í Flickr.
Nú skaltu hlaða inn myndum sem eru geymdar einhvers staðar á tölvunni þinni. Þú finnur þær bara á venjulegan hátt, smellir á þær og síðan á open. Reyndu að hafa myndirnar ekki stórar því það eru takmörk af því hvað þú mátt hlaða inn miklu ef þú ert með ókeypis notendaaðgang á flickr.
Þú getur hlaðið inn sex myndum í einu (þú þarft ekki að hlaða inn nema
einni í einu ef þú vilt) og gefið þeim öllum efnisorð (tag) svo það verði
auðvelt að fletta upp. Það er hægt að fletta upp í flickr eftir efnisorðum,
t.d. ef slegið væri inn efnisorðið "brúðkaup" þá færðu allar myndir hjá
öllum notendum sem hafa sett þetta efnisorð á sínar myndir. Prófaðu að
fletta upp efnisorðum hérna:
Þegar þú smellir á UPLOAD þá er myndunum þínum hlaðið upp á Flickr frá tölvunni þinni. Það getur tekið tíma ef þú ert með stórar myndir. Hafðu bara litlar myndir.
Þú getur t.d. sett fyrirsagnir og lýsingu á hverja mynd. Þeir sem skoða myndirnar þínar geta svo tjáð sig um hverja mynd (smella á comment). Þú getur sett inn efnisorð til að gera uppflettingar auðveldari t.d. ef þetta eru myndir frá skemmtiferð til Parísar þá getur þú sett inn orðið Paris.
Þegar þú skoðar myndirnar þínar þá líta þær svona út. Nýjustu myndirnar eru efst.
Ef þú vilt setja myndræmu með nýjustu myndunum þínum á vefsíðu þá smellir þú á "Add a Flickr badge to your website" og þá birtist þetta:
Þú færð svo kóða sem þú getur sett á vefsíðu.
Þú getur svo afritað kóðann í glugganum og farið inn í Frontpage og límt hann inn á vefsíðu. Athugaðu að þegar þú límir inn HTML kóða þá verður þú að velja HTML neðst á skjánum (smelltu fyrst á vefsíðuna þar sem þú vilt að myndræman komi og smelltu á HTML og límdu inn kóðann. Smelltu svo aftur á Normal og vistaðu vefsíðuna. Þú getur skoðað hana í preview og á vef og þá er myndræman sótt og birtist á síðunni.
Þú getur bæði skoðað þínar eigin myndir og einnig myndstraum frá þeim sem þú ert í samskiptum við (contacts). Til að bæta einhverjum á þinn samskiptalista þá skaltu finna viðkomandi í Flickr og gera hann að samskiptaaðila. Þú getur t.d. fundið Íslendingana á Flickr með að skrá þig í hópinn Reykjavik (subscribe to group), þú finnur þann hóp með að smella á groups og slá inn leitarorðið Reykjavik.
Ef þú smellir á Members í hópnum Reykjavík þá færðu lista yfir alla sem hafa skráð sig í þann hóp. Til að setja einhvern á þinn samskiptalista þá skaltu smella á smámyndina eða nafnið á viðkomandi. Þá ferðu inn á flickrsvæði viðkomandi og þar getur þú smellt á Add as a contact.
Taktu eftir að að af sumum er smámynd. Þú getur sett inn þína eigin smámynd og ýmsar upplýsingar um þeg með að breyta "your profile". Þú kemst til að breyta þeim upplýsingum sem skráðar eru um þig (your profile) t.d. með að velja "Yours" og sjá yfirlit yfir þínar myndir og þar hægra megin er "your profile". Smelltu á Edit this page og þá færðu skjámynd eins og hér fyrir neðan. Það getur þú svo fyllt út þær upplýsingar um þig sem þú vilt og t.d. gefið upp slóð á vefinn þinn eða bloggið þitt.
Þú getur á auðveldan hátt sett in smámynd af þér (buddy icon). Hún verður að vera 48X48 punktar en þú getur klippt hana úr stærri mynd. Smelltu á Your Buddy Icon og veldu mynd á tölvunni þinni og klipptu út úr henni það sem þú vilt með að færa rammann sem kemur upp.
Hvað getur þú nú gert við myndirnar þínar?
Mjög auðvelt er að tengja myndir við blogg t.d. hjá www.blogger.com eða www.livejournal.com og senda myndir beint inn í bloggin þ.e. myndirnar birtast á blogginu en eru geymdar á Flickr. Það er að vísu það vandamál í augnablikinu að íslenskir stafir koma vitlaust í textanum sem fylgir myndinni í blogger en það er virkar hins vegar vel í livejournal.com bloggum. Til að tengjast við blogg þá skaltu bara smella á "Blog this" og smella á "you have not configured to post to yet. Why not do it now?"
Þú þarft svo að velja að þú sért með blogger blog.
Og gefa upp notendanafn (user name) og lykilorð (password) á blogginu þínu. Þegar það er búið ferðu aftur á myndina og smellir á blog this.
Þú getur framvegis sett hvaða mynd sem er af Flickr inn á bloggið þitt - ekki bara þínar myndir heldur líka myndir annarra - með að skoða myndina í Flickr og smella á Blog this. Athugaðu hins vegar að eins og er (september 2004) þá koma íslenskir stafir með myndum brenglaðir og þess vegna skaltu ekki skrifa inn texta um leið og þú sendir myndir á blogg heldur fara í bloggið þitt og breyta myndfærslum (EDIT) sem Flickr hefur sent inn á bloggið. Hér er dæmi um hvernig svona blogg getur litið út eftir að búið er að breyta myndfærslum og setja inn texta (í blogger) með myndblogginu.
Myndir beint inn á blogg og Flickr Þú getur sent mynd inn á
Flickr bæði í gegnum síma og með tölvupósti. Farðu á á Upload Tools og
smelltu á tengilinn :
Þú getur líka smellt til að láta setja myndir koma sjálfkrafa inn á bloggið þitt (automatically post photos to your blog) um leið og þú hleður þeim upp á Flickr í gegnum tölvupóst eða GSM síma.
Þú þarft aðeins að setja tengingar við blogg upp einu sinni og eftir það er leikur einn að senda myndir sem viðhengi beint inn á bloggið, annað hvort sem viðhengi í tölvupósti eða Þú hefur núna tvö netföng, annað til að hlaða myndum inn á Flickr svæðið þitt og hitt til að hlaða myndum bæði á Flickr svæðið þitt og senda í leiðinni sem myndblogg. Ef þú hakar við "Yes please" þá kemur textinn sem þú sendir með tölvupóstinum fram sem texti með blogginu þínu.
Senda mynd í tölvupósti beint á blogg Þú getur nú farið inn í ritvinnslukerfið þitt og sent mynd í tölvupósti og sett einhvern texta með myndinni. Þá kemur myndin fram á blogginu þínu eftir nokkra stund og textinn sem þú skrifaðir með. Athugaðu að íslenskir stafir koma alveg rétt inn á bloggið þegar þú sendir í tölvupósti en ekki inn á Fickr.(september 2004). Þú þarft því að þurrka út textann eða laga á Flickr. Hér er dæmi um hvernig það getur litið út þegar þú sendir tölvupóst. Dæmið miðar við Gmail póstkerfið en það ætti að vera svipað með önnur kerfi. Sem sagt þetta er bara eins og að senda tölvupóst með mynd sem viðhengi.
Þú getur puntað upp á bloggið þitt eða hvaða vefsíðu sem er með að setja
þangað box með myndum augnabliksins. Þetta kallast tíðarandinn eða Zeitgeist
og þú getur valið frá hvaða myndstraumum myndirnar eru.. Þú gætir t.d.
viljað hafa box með eingöngu myndum frá þér og þeim sem eru á þínum
samskiptalista (you and your contact´s photos).
Ef þú vilt líma þennan kóða þannig að hann komi alltaf til hliðar á bloggið þitt þá þarftu að að líma þetta inn í sniðið (template) á blogginu. Það gerir þú með að velja Template og finna þetta <!-- Límdu svo zeitgeist kóðann t.d. beint fyrir ofan þessa setningu
og vistaðu breytingar. Við allar breytingar á sniði (template) verður þú að
gefa bloggið út aftur þ.e. REPUBLISH og þú getur þurft að ýta á Refresh
Hér er dæmi um blogg með Zeitgest boxi:
Hópar í Flickr
Slóðir með ítarefni um Flickr og önnur netsamfélög (social networks) Many-to-Many Kids and Social Software II Neopets © 2004 Salvör Gissurardóttir .
|