Þingvellir 27. júní 2002 - Þórsdagur í 10. viku sumars
  Salvör Gissurardóttir tók ljósmyndir, safnaði saman textum og setti á vefsíðu.

Við fórum í fjölskylduferð á Þingvelli 27. júní 2002 í kvöldgöngu á vegum þjóðgarðsins. Dr. Gunnar Kristjánsson prestur á Reynivöllum í Kjós sagði frá Jóni Hreggviðssyni og baráttu hans við réttvísina hér á landi og erlendis. Fjallað var um hugmyndir hans um réttlætið eins og þær koma fram í Íslandsklukkunni. Saga hans og meistara Jóns Vídalíns biskups skerast á Þingvöllum en þar flutti Vídalín sína merku predikun, sem gengið hefur undir heitinu "Um lagaréttinn".


Safnast var saman við útsýnisskífuna klukkan 20:00 og gengið niður Almannagjá.
Svona var útsýnið frá útsýnisskífunni.

Lautarferð nálægt Peningagjá.
Við höfðum með okkur nesti og borðuðum í lautu nálægt Peningagjá. Rugluðumst svolítið á merkingum, Peningagjá er víst síðari tíma örnefni. Flosagjá er ein af megingjám Þingvalla með tæru vatni allt að 25 m djúpu. Á móts við þingið klofnar gjáin á löngum kafla og nefnist eystri kvíslin Nikulásargjá. Yfir hana var lögð brú 1907. Eftir það tóku ferðamenn að kasta smápeningum í vatnið fyrir neðan og smám saman var farið að kalla þann gjárhluta Peningagjá.

Þjóðskáldið Jónas Hallgrímsson segir:

En á eldhrauni upp, þar sem enn þá Öxará rennur
ofan í Almannagjá, alþing er horfið á braut.
Nú er hún Snorrabúð stekkur, og lyngið á lögbergi helga
blánar af berjum hvurt ár, börnum og hröfnum að leik.
Ó þér unglingafjöld og Íslands fullorðnu synir!
Svona er feðranna frægð fallin í gleymsku og dá!

Hvar var lögrétta? Hvar var lögberg og hvar er þessi Snorrabúð sem Jónas talar um?
Hér er kort yfir Þingvelli og helstu örnefni.

Lögberg

Samkvæmt margra skoðun er Lögberg á eystri barmi Almannagjár, undan Strókum, eftir Kristnitökuna árið 1000 (999). Þar stóður ferkantaðir hraunsteinar í hálfhring, líklega sæti. Þessum steinum veltu Jón Ólafsson, Grunnvíkingur, og Páll Vídalín, lögmaður, niður í Öxará 1724. Flestir, sem leggja leið sína á Lögberg, koma gangandi um Almannagjá eða neðan frá Öxará um Hamraskarð. Þetta Lögberg var lýst „Kristna-Lögberg" á 18. öld og „Heiðna-Lögberg" á Spönginni milli Flosagjar og Nikulásargjár.

Alþingi var líklega stofnað á Heiðna-Lögbergi, en var flutt að Hamraskarði, þegar Öxará var veitt niður í Almannagjá og skildi Lögberg og Lögréttu að. Lögrétta var æðsta stofnun Alþingis. Hún stóð líklega á Neðrivöllum, austan Lögbergs. Goðar sátu á miðpalli í Lögréttu ásamt lögsögumanni og síðar biskupum. Framan og aftan við þá sátu ráðgjafar þeirra. Miðpallsmenn réðu einir lögum og lofum. Líklega voru pallarnir úr tré, þannig að tímans tönn hefur séð fyrir þeim eftir að Lögrétta lagðist af.

Oft var þröng mikil umhverfis lögréttu, þegar máttugir goðar eða höfðingja vildu hafa áhrif á lagagerð og stundum var lögréttumönnum ekki vært. Því var Lögrétta færð nokkrum sinnum, svo að lögréttumenn gætu unnið verk sín í friði og án þess að vera í lífshættu. Hún var m.a. á Spönginni, þar sem finnast merki um mannvirki. (texti úr nat.is)

Gengið niður Almannagjá. Það voru á þriðja hundrað manns í göngunni. Veðrið var frábært.

Frá ársbyrjun 1930 hafa Þingvellir við Öxará og grenndin verið friðlýstur helgistaður allra Íslendinga. Hið friðlýsta land er undir vernd Alþingis og ævinleg eign íslensku þjóðarinnar. Það má aldrei selja eða veðsetja. Íslendingar hafa lagt til að Þingvellir verði á heimsminjaskrá Unesco.

Á Þingvöllum söfnuðust Íslendingar saman árið 930 og stofnuðu Alþingi.
Lýðveldið Ísland var stofnað á Þingvöllum 17. júní 1944.


Við stofnun Alþingis 930 hófst íslenska þjóðveldið sem stóð fram til 1262 en þá voru Íslendingar sjálfstæð þjóð og yfirstjórn landsins í höndum Alþingis á Þingvöllum. Alþingi var þá í senn bæði löggjafarþing og dómþing. Þar voru sett lög í landinu og deilur milli manna settar niður. Alþingi er því elsta starfandi þjóðþing í heiminum.


Setið í Almannagjá og hlýtt á erindi séra Gunnars.

Þingvellir voru fundarstaður þjóðarinnar fram til ársins 1798, eða í 868 ár samfleytt.

Þingvellir eru oft vettvangur Íslendingasagnanna en þær eru flestar ritaðar á 13. öld. Íslendingasögurnar eru taldar til mestu gersema Íslendinga og helsta framlag þeirra til heimsmenningarinnar.

Þingvellir eru líka afar merkilegt svæði jarðfræðilega. Talið er að landspildan, þar sem Þingvellir standa, hafi verið að misganga og síga í 200-300 þúsund ár. Þetta brota sigbelti liggur sunnan frá Hengli og norður um Kaldadal. Sigdeildin hefur sigið um ríflega 40 metra frá því að hraunið, sem þekur Þingvelli, rann. Við þetta mynduðust hinar miklu gjár, Almannagjá og Hrafnagjá, svo og vestanverð dældin þar sem Þingvallavatn er nú.

Oft er talað um að á Þingvöllum mætist Evrópa og Ameríka og það er ekki fjarri lagi því að sigdældin hefur skapast vegna þess að jarðskorpuflekar Evrópu og Ameríku eru að færast í sundur. (Nesbúð)


Á steinbrúnni við Drekkingarhyl í Öxará.

Um Drekkingarhyl
Karl Matthíasson og Mörður Árnason þingmenn lögðu fram á vorþingi 2002 þingsályktunartillögu um að steinbrúin færi og í staðinn kæmi trébrú. Þeir benda á að  áar okkar hafi  á stöku stað ekki gætt þess í framkvæmdagleði sinni að taka nægilegt tillit til umhverfisins og hinnar sögulegu arfleifða.
Með því að fjarlægja steinbrúna og setja trébrú  yrði þessu náttúruvætti innan þinghelginnar sýndur sá sómi sem við á, og vilja  helga það verk minningu þeirra kvenna sem hér mættu örlögum sínum. Össur Skarphéðinsson mælti með þessu.


"Svo er háttað um Drekkingarhyl nyrst í Almannagjá þar sem nú er grunnur pollur sem stendur illa undir nafni. Áður var hér djúpur hylur eða svelgur framan við þröngt klettahaft og féll áin yfir það í talsverðum fossi sem í heimildum er helst kallaður Neðrifoss. Konur sem fundnar voru brotlegar við ákvæði Stóradóms um óhæfu og fordæðuskap voru settar í hærusekk og drekkt í hylnum, sennilega kastað í hann austanmegin af klettunum, og sá svelg urinn um það með iðuköstum sínum að dauðastríð þeirra tæki fljótt af.

Breytingar við Drekkingarhyl eiga sér þá sögu að árið 1911 var ákveðið að leggja steinbrú yfir Öxará framan hylsins í stað trébrúar sem þar hafði verið lögð 1897. Við brúarsmíðina var farið fram af allmiklum ákafa, enda komin sú öld að „þótt þjaki böl með þungum hramm / þrátt fyrir allt þú skalt, þú skalt samt fram“ og skipti þá minna máli hvað fyrir varð. Við brúargerðina var allmikið af gjárhaftinu sprengt í loft upp með dínamíti og var þá burtu í senn fossbrúnin og hylbarmurinn. Vatnsborð hylsins lækkaði og hinn fagri Neðrifoss breytt ist í flúð. Við síðari endurbætur á brúnni hvarf enn meira af klettasnösinni, þar á meðal sú brík sem hinum gæfusnauðu konum var hrundið fram af." (greinargerð með þingsálykturartillögu

 

Þingvellir eru forn þingstaður og helgur staður í augum Íslendinga. Þingvellir eru í sigdæld milli gliðnandi landreksfleka. Gliðnunin markar allt landslagið með gjám og sprungum sem sumar hverjar eru fylltar tæru lindarvatni. Þingvallavatn er stærsta náttúrulega stöðuvatn landsins(Náttúruvernd)

Hátt á eldhrauni upp, þar sem enn þá Öxará rennur
ofan í Almannagjá, alþingið feðranna stóð.
Þar stóð hann Þorgeir á þingi er við trúnni var tekið af lýði.
Þar komu Gissur og Geir, Gunnar og Héðinn og Njáll.
Jónas Hallgrímssson

Í Haukdælaþætti Sturlungu segir að ánni hafi verið veitt í Almannagjá til þess að þingheimur hefði greiðan aðgang að vatni.


Systur við Öxará.

Öxar við ána

Öxar við ána, árdags í ljóma,
upp rísi þjóðlið og skipist í sveit.
Skjótum upp fána, skært lúðrar hljóma,
skundum á Þingvöll og treystum vor heit.
Fram, fram, aldrei að víkja.
Fram, fram, bæði menn og fljóð.
Tengjumst tryggðarböndum,
tökum saman höndum,
stríðum, vinnum vorri þjóð.

Helgi Helgason / Steingrímur Thorsteinsson


Ásatrúarmenn komu saman á Þingvöllum því nú var einmitt Þórsdagur í 10. viku sumars.
Hér má sjá Alsherjargoðann Jörmund Inga ganga á braut úr Lögbergi.

Á sama tíma og við gengum niður Almannagjá að kirkjunni á Þingvöllum og sátum þar í kvöldsól og hlýddum á  leiðsögn prestins á Reynivöllum héldu Ásatrúarmenn blót sitt á Þingvöllum en yfir því hvíldi mikill skuggi. Við komum þar að þegar hlé var gert á athöfn á Lögbergi og mun Lögrétta, stjórn félagsins hafa  vikið Jörmundi Inga allsherjagoða úr embætti  vegna valdníðslu og samstarfsörðugleika.

 Frásögn í Íslendingabók af kristnitöku

Lögberg var ræðustaður Alþingis og miðdepill. Lögsögumaður, forseti þingsins sem kosinn var til þriggja ára í senn, sagði upp lögin. Áður en lög voru færð í letur var honum ætlað að varðveita þau í huga sér og flytja í heyranda hljóði frá Lögbergi á þrem sumrum en þingsköp hvert sumar. Þinghelgun og þinglausnir fóru fram á Lögbergi og þar voru úrskurðir Lögréttu tilkynntir, tímatal rétt, stefnur birtar og þau tíðindi önnur sett fram er vörðuðu þjóðina alla. Lögberg var opið öllum þingheimi, þar gat hver maður flutt mál sitt í mikilvægum málum.


Setið í Lögréttu og hlýtt á erindi séra Gunnars.

Lögrétta var hin eiginlega löggjafarstofnun Alþings og jafnframt æðsti dómstóll landsins. Þar voru lög sett og rétt og skorið úr lagaþrætum. Lögrétta tilnefndi menn í fimmtardóm, kaus lögsögumann og hlutaðist til um biskupskjör. Ólíkt Lögbergi var Lögrétta lokuð stofnun, þar áttu aðeins ákveðnir menn sæti með fullum réttindum: Goðar, er réðu fyrir goðorðum landsins, þingmenn þeirra og síðar einnig biskupar. Öllum þingheimi var hins vegar frjálst að fylgjast með störfum Lögréttu og hlýða á allt það sem þar fór fram.


Kristín Helga með blóm.

 


Kort af Þingvallasvæðinu.

 

Þingvellir in 1836.
"General view of Almanna Gorge, taken from the church at Þingvellir" (original 1842 caption). Members of the Gaimard expedition are seen riding across Axe River. When he made the sketch for this lithograph on 21 June, the artist Auguste Mayer was standing a little north of the present-day church and looking northwest toward Almanna Gorge.

"Snorri's old site"; (Snorrabúð) and the Law Rock (Lögberg) are across the river on the slope (to the left). Above them soars Eagle Bluff (Arnarklettur); on the distant horizon is the mountain Botnsúlur; to the right are the roots of the mountain Ármannsfell. Axe River Falls, not visible in the picture, is located about a kilometer north of where Mayer was standing. (source Jonas Hallgrimsson)

Textar eru af : thingvellir.is, nat.is, nesbud.is o.fl. Kort eru frá thingvellir.is
Salvör Gissurardóttir tók myndir, safnaði saman textum og setti á vefsíðu í júní 2002.