Sumarkvöld í Reykjavík 1. júlí 2002
Salvör Gissurardóttir tók myndir og setti á vefsíðu.
Fór með vinkonu minni í ökuferð
um strendur Reykjavíkur og nágrennis.
Fyrst fórum við í Kópavogshöfn, þar voru að koma að landi þaraveiðimenn.
Þeir safna þara sem notaður er sem fóður fyrir sæeyru.

Það voru nokkrir að veiða á
stöng á Kópavogshöfn.
Ég held að veiðin hafi mest verið litlir ufsar.

Hér dregur einn veiðimaðurinn
fisk á land.
Hún er frá Kína og sagði að þar væru þau vön að veiða svona á sumrin.

Hún setti aflann í fötu með
vatni.
Hún sagði að þetta væri góður fiskur.

Við fórum svo í Nauthólsvík,
horfum á krakka vaða í sjónum, kajaka sigla um og strandveislu.
Fengum okkur kaffi í Kaffihúsinu Nauthól og horfðum á margar kanínur sem léku
fyrir utan.

Þeir voru með trommur með sér og voru að grilla en lögreglan kom og bannaði það.

Við fórum líka út í Gróttu og
horfðum á sólina hverfa bak við ský.
Fórum svo að Garðstöðum og horfum á Esjuna og Akrafjallið.

Salvör Gissurardóttir tók myndir 1. júlí 2002 og setti á vefsíðu.