|
Kartöflur
Sýnishorn af
kennsluefni á vef. (ein vefsíða)
Hér ætla ég að taka saman kennsluefni um
kartöflur.
Ég ætla að safna efni um sögu kartöflunnar, hvað
eru kartöflur, hvernig á að rækta kartöflur,
hvernig á að matreiða kartöflur og ýmislegt
annað varðandi kartöflur og hvern þátt þær
skipa í menningu okkar og fæðu og hvernig ræktun
þeirra og neysla tengist sjálfbærri þróun.
En á meðan vefurinn er ekki til - er hér ein síða
með sögulegri kartöfluuppskrift
Salvör Gissurardóttir
Potage
Parmentier
Þessi
frábæra franska súpa er ljúffeng og einföld.
Hentar ágætlega sem fyrsti réttur fyrir 6-8 manns.
Sagan
um súpuna: Í Frakklandi var hungursneyð í sjö
ára stríðinu (1756-1763). Franskur maður, Antoine
Auguste Parmentier að nafni hafði lent í fangabúðum
í Þýskalandi og þar fengu fangarnir súpu
úr þessum að menn héldu eitraða rótarávexti.
Þeg Parmetier var laus úr prísundinni og kominn aftur
til Frakklands þá sultu allir. Hann setti þá
upp mörg kartöflusúpueldhús fyrir fátæklinga
í París. Seinna þá sagði Louis XV um störf
hans: Einhvern daginn munu Frakkar þakka þér fyrir
að hafa fundið brauð handa hinum fátæku."
Núna
heiðra Frakkar Parmetier með því að borða
súpuna sem við hann er kennd.
- 3
bollar af púrru , nota hvíta hlutann af stilkunum og þá
græna hluta sem eru mjúkir, brytja púrruna niður
(gott er að byrja að láta púrrubitana malla smátíma
í 3 matskeiðum af smjöri - það er þó
ekki í upphaflegu uppskriftinni.)
- 4
bollar af skræluðum karftöflum í bitum
- 8
bollar af vatni (ágætt er að nota kjúklingasoð)
- 1
matskeið af salti
- 6
matskeiðar af rjóma
Setja
svo steinselja eða graslauk út á súpuna áður
en hún er borin fram.
Svo
er að sjóða kartöflur og púrru í saltvatni
þar til allt er vel soðið - svona um 50 mínútur
og er að sigta þetta í mauk og krydda að vild. Rétt
áður en súpan er borin fram þá er rjómanum
bætt út í og stráð steinselju eða graslauk
út á.
Hér er ítarefni um kartöflur
Kartöfluuppskriftir
hjá Woolworths
Púrru
og kartöflusúpa
Kartöfluuppskriftir
frá Þykkvabæjar
Garðheimar.is Kartöflur Hvernig á að rækta kartöflur
Hvernig á að geyma kartöflur?
Vísindavefurinn:
Hvort er betra að geyma kartöflur í ísskáp eða við herbergishita
Geymsla kartaflna (bondi.is)
Út af hverju eru
íslenskar kartöflur rauðar
Ræktun kartaflna (bondi.is)
Forspírun (bondi.is)
Þessi
uppskrift er þýdd af Netinu.
Salvör Gissurardóttir. apríl 2002.
|