|
| |
- Kennsla í grunndeild Kennaraháskólans: Íslenska, einkum málfræði, ritun og stafsetning, og um
hvernig heppilegt er að kenna þessar greinar í grunnskóla.
-
Símenntunarnámskeið og fræðslufundir fyrir kennara (má panta hjá
Símenntunarstofnun Kennaraháskólans):
- Heildstæð móðurmálskennsla
- Kennsla
stafsetningar (orðhlutaleið)
- Íslensk málfræði og kennsla hennar
- Upplestur, framsögn og framburður (námskeið í tengslum við Stóru
upplestrarkeppnina í 7. bekk)
- Markviss notkun ritvinnslu í stærri ritsmíðum (innsláttur, útlit og
skipulag texta)
- Að skrifa góða grein (námskeið á vegum Endurmenntunar HÍ)
-
Einstök námskeið:
- Fræðslufundur um gerð fræðilegra ritgerða.
- Kynningarfundir um Matsatriðabankann
-
Matsatriðabankinn. Lítið verkefni sem
snýst um auðvelda kennurum að meta verkefni nemenda. Notuð eru sérstök
matsblöð með skilgreindum viðmiðunum sem fela í sér leiðbeiningar til
nemandans um hvað betur má fara og eru jafnframt rökstuðningur fyrir
námsmati. Blöðin eru mjög einföld og fljótleg í notkun, geta tryggt góða
dreifingu einkunna og samræmingu í mati milli kennara. Matsatriðabankinn er
safn matsatriða sem kennari velur úr þegar hann býr til matsblað fyrir
verkefni nemenda hverju sinni. Kennari getur búið til og þróað sinn eigin
banka og klæðskerasniðið matsviðmið sín að hvaða verkefni sem er. Þeir sem
áhuga hafa á að kynna sér bankann nánar geta smellt
hér.
|