Félag náttúrufræðikennara á grunnskólastigi


Aðalsíða
Fréttir
Umræða
Lög
Stjórn
Markmið
Saga
Félagaskrá
Skráning
Myndir
Námskeið
Styrkir
Krækjur

13. september 2007

Vísindavaka

Vísindavaka - Stefnumót við vísindamenn fer fram í Listasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu á föstudaginn 28. september. Herlegheitin hefjast kl. 18:00 og standa til kl. 21:00. Dagana 23.-27. september verður boðið upp á Vísindakaffið þar sem verða til umræðu vísindaleg fyrirbæri. Stjórnandi umræðna verður Davíð Þór Jónsson. Allt eru þetta skemmtilegir viðburðir bæði fyrir unga og aldna.

Frekari upplýsingar má finna hér.

18. júní 2007.

Opnun nýrrar heimasíðu

Ágætu félagar í FNG

Félag náttúrufræðikennara á grunnskólastigi hefur tekið í gagnið nýja heimasíðu á vefslóðunni http://www.fng.is Þessi síða er að mestu leyti unnin af Ólafi Erni Pálmarssyni og Kristjáni K. Stefánssyni sem báðir eru náttúrufræðikennarar við Laugalækjarskóla. Við gerð heimasíðunnar var stuðst við efni á eldri heimasíðu félagsins sem byggð var upp og viðhaldið af ritara félagsins Valdimari Helgasyni.

Þrír aðilar styrktu verkefnið en það voru Menntamálaráðuneytið, Rannsóknarhópur um náttúrufræðimenntun í KHÍ og Kennarasamband Íslands og kann félagið þeim bestu þakkir.

Með von um að nýja heimasíðan nýtist félagsmönnum vel,

Stjórn Félags náttúrufræðikennara á grunnskólastigi.