Wikispaces

Salvör Gissurardóttir
Gert í nóvember 2006

Um þessar mundir (nóvember 2006) býður vefþjónustan wikispaces.com kennurum og nemendum  upp á ókeypis wiki án auglýsinga. Hægt að láta þessi wikisvæði vera lokuð fyrir aðra en áskrifendur eða alveg galopin. Þetta er mjög gott wikikerfi og  ágætt fyrir kennara  og kennaranema að prófa að skrifa inn í svona kerfi. 

Wikikerfið sem knýr Wikispaces er að mörgu leyti þægilegra en Mediawiki sem knýr Wikibooks og Wikipedia, það er aðgengilegra og það er auðvelt að líma inn kóða t.d. myndbrot, hljóðskrár, forritabúta (embed media). Einnig hefur sá sem býr til svæðið stjórnunarréttindi á sínu svæði til að opna og loka aðgangi og eyða úr skrám.

Ég hef tekið saman leiðbeiningar í nokkrum hlutum um Wikispaces.
 

Ég skráði t.d. svæðið nkn.wikispaces.com og bjó til skjákennslu sem sýnir hvernig maður býr til síðu og setur inn texta, tengingar og myndir.

Wikispaces leiðbeiningar - kafli 1

Wikispaces leiðbeiningar 2. kafli

Wikispaces leiðbeiningar 3. kafli

Wikispaces leiðbeiningar 4. kafli

Hér er dæmi um vef á wikispaces.com vefsvæðinu

blendedlearning