Inngangur
2,október 2007



Þessi vefur inniheldur sex vefsíður (heim, ljósmyndasaga, krakkar gera stuttmyndir og Austurstræti , Youtube og tengla) og fimm sýnikennslur á skjá, eina um ljósmyndasögu um kol og surtarbrand (10 mín) , aðra um Moviemaker upptöku á hljóði og þriðju um hvernig búin er til stuttmynd um brunann í Austurstræti með ljósmyndum og vídeó og fjórðu um hvernig þú setur stuttmynd inn á Youtube og fimmtu um hvernig þú getur klippt og sett saman efni á Youtube. Einnig er vísað í margs konar hjálparefni frá öðrum aðilum.
Þessi vefur er ætlaður fyrir alla sem vilja nota algeng og ókeypis verkfæri eins Moviemaker og ókeypis vefþjónustur eins og Youtube til að láta nemendur útbúa stuttmyndir í tengslum við skólastarf og frístundir.
Verkefni
Gerum ráð fyrir að viðfangsefni þitt sé að útbúa 1 til 3 mínútu stuttmynd í Moviemaker eða einhverri vefþjónustu og setja stuttmyndina á vefinn með aðstoð vefþjónustu eins og Youtube þannig að þegar þú hefur hlaðið upp stuttmyndinni þá fáir þú kóða (embedded code) sem líma má inn í blogg eða vefsíður til að spila stuttmynd. Einfaldasta verkfærið til þeirra hluta er að nota Windows Moviemaker en það færist líka í vöxt að raða stuttmyndum saman á vefnum þ.e. hlaða myndskeiðum (videoclips), ljósmyndum og hljóðskrám beint á vefinn og útbúa stuttmyndir þar. Þá þarf ekki að hafa neitt forrit til að klippa til og setja saman stuttmyndir
Skjákennsla um Moviemaker
Smelltu á tengilinn hér fyrir neðan til að skoða skjákennsluna:
Moviemaker stuttmyndagerð - Að gera ljósmyndasögu
um kol og surtarbrand (10 mín)





Ef þú notar Firefox eða wmv skráin byrjar ekki strax að spila þá skaltu hægrismella á tengilinn hér fyrir ofan og vistaðu skrána kol.wmv á harða disknum þínum eða horfðu á hana (í minni gæðum) hér fyrir neðan á youtube.
Smelltu á þennan tengill til að skoða sýnikennslu (á flash formi) um
upptöku í Moviemaker:
Moviemaker upptaka
Þetta er kynning á hvernig hægt er að nota Moviemaker til að taka upp hljóð
og vista á wma formi og flytja svo inn í My files í Elgg.





Moviemaker er uppsettur á öllum tölvum í tölvuveri KHÍ. Moviemaker fylgir með
Windows (service pack 2) en hægt er að hlaða því niður af vefnum ef
það er ekki á tölvunni þinni á þessari slóð:
http://www.microsoft.com/windowsxp/downloads/updates/moviemaker2.mspx
Ljósmyndasaga (sýnishorn)
Hér er efniviður í æfingar sem þú getur gert í moviemaker:
Ljósmyndasaga um
1. maí
Þegar þú hefur búið til stuttmynd þá vistar þú hana (á wmv formi) og hleður henni inn á Youtube.
Kennsluefni um stuttmyndagerð með börnum



- Að segja frá með myndum - kvikmyndun, mið- og unglingastig (þetta hefti er í möppunni námsefni á elgg svæði Salvarar) Vefefni hjá Námsgagnastofnun : útkoma á vef okt. 2004 - höfundar Karl Jeppesen og Marteinn.
-
Stuttmyndagerð 2007
(Björgvin Ívar tók saman fyrir valnámskeið í Langholtsskóla)
- Kids'Vid stafræn stuttmyndagerð með börnum
- Krakkar gera stuttmyndir
Leiðbeiningar með moviemaker

Heimatilbúnar kvikmyndir (skjákennsla -
leiðbeiningar um 3 mín á ensku frá Microsoft)
Ef þessi stuttmynd byrjar ekki að spila, hægrismelltu þá og vistaðu hana
og spilaðu þannig.
Windows Movie Maker How to use
Creating your first short movie
Multimedia Content Creation (powerpoint, moviemaker og powerpoint
producer)
Best free video editing software

zs4.net (ókeypis - fyrir linux og windows)
Það er hægt að hlaða niður ókeypis
Photostory 3 frá Microsoft. Það er mjög einfalt forrit og
einfaldara en Moviemaker.
Hér eru líka leiðbeiningar með moviemaker þ.e. að setja saman ljósmyndasögu
http://www.jakeludington.com/free-tutorials/videos/moviemaker/photoslideshow.wmv
(í þessu er líka notuð SpiceFX effects and Transitions, sem fást hjá
Pixelan.com.)
http://nkn.khi.is/mm/moviemaker/hjol/index.htm (efniviður í að gera
stuttmynd um hjólreiðar)
Hér eru slóðir um moviemaker:
WindowsMovieMakers.NET
for Microsoft Windows Movie
Maker 2 Enthusiasts.
Addicted to Digital Media - Tips for Windows Movie Maker 2
Create Digital Home Movies with Windows Movie Maker in Windows XP
Windows Movie Maker 2 -
Atomic Learning, Inc.
Að setja stuttmynd á Youtube
Þú verður að hafa notendanafn á Youtube. Þú hleður stuttmynd þar inn
en hún má mest vera 10 mínútur. Það er líka hægt að klippa til og laga
myndskeið á Youtube.
Að setja stuttmynd á vefsíðu (frontpage vef eða expression vef)
Þegar þú ert búin að gera stuttmyndina
getur þú sett hana á vefsvæðið þitt (dregur
hana yfir í "Folder list" á vefsvæðinu þínu eða hleður hinni upp í
skráarsvæði í Elgg). Þú skalt svo gera nýja vefsíðu
sem stuttmyndin á að birtast á.
Dragðu svo stuttmyndina yfir á vefsíðuna (eða farðu í Insert picture og
veldu video).
Stuttmyndin byrjar ekki að spila fyrr en þú ferð í preview.
Þú getur hægrismellt til að breyta stillingum og þú getur líka sett svona ás
til að stjórna myndspilun
Sjá dæmi á
þessari síðu (afritaðu þessa síðu og breyttu nafninu á vídeómyndinni)
Youtube
Það eru mörg videó sem eru sýnilkennsla í myndbandsgerð og notkun á Moviemaker á Youtube.com. Leitaðu þar. Hér er dæmi um vídeó á youtube.

Stuttmyndir fyrir vefinn