Netmálstofa
29. september 2006 kl.16
í tengslum við ráðstefnu á Akureyri

Image

Fagfélagið 3F, félag um upplýsingatækni og menntun hefur tekið að sér að sjá um netmálstofu á ráðstefnunni Samræða milli skólastiga.

Netmálstofan verður föstudaginn 29. september kl. 16:00 - 17:20.

 

Á málstofunni verður fjallað um  samvinnu og samstarf um hugbúnað og þýðingar tölvuhugbúnaðar á íslensku og samvinnu og samstarf um námsefni og leiðbeiningar fyrir kennara og nemendur. Sérstaklega verður fjallað um ókeypis og opinn hugbúnað sem nýtist fyrir nemendur og skólastofnanir.

 Salvör Gissurardóttir  lektor í KHÍ stýrir netmálstofunni en auk hennar taka til máls Sigurður Fjalar Jónsson F.B., Elín Jóna Traustadóttir Flúðaskóli og fleiri (bæti hér við).

Glærur Salvarar frá málstofunni:

Málstofan er liðin en upptöku frá henni má spila með því að smella hérna.
Ef byrjunarstillingar hafa ekki verið skoðaðar þá þarf að fara á athuga byrjunarstillingar.

Netmálstofan verður haldin í kennslurými KHÍ í  netfundakerfi Skýrr sem er af gerðinni Horizon wimba.  Þátttakendur geta verið staðsettir hvar sem er og tengst netmálstofunni ef þeir eru við nettengda tölvu og hafa stillt tölvuna sína þannig að hún taki við hljóði og skjásýningum í svona kerfi.

Það þarf að fara á slóðina http://wimba.skyrr.is til að tengjast
Leiðbeiningar eru á hjálparsíðunni og einnig á þessari vefslóð:

http://fjarnam.khi.is/wimba

Það þarf að prófa ýmsar stillingar í upphafi (wimba sér um það á nokkuð sjálfvirkan hátt) þannig að mælt er með að þátttakendur gefi sér góðan tíma í það áður en málstofa hefst ef þeir hafa ekki notað Horizon wimba áður.